Skírnir - 01.01.1967, Blaðsíða 134
132
Ólafía Einarsdóttir
Skirnir
1066, þegar talið er, að Haraldur Sigurðsson hafi fallið, en
það er fengið frá vestur-evrópskum heimildum; og að lokum
árið 1029, dánarár Ölafs helga, en því ártali bætir Theodric-
us við frásögnina af falli hans með þessum orðum: Occubuit
autem beatus Olavus quarto Kal. Augusti, quod tunc erat
quarta feria. anno ab incarnatione Domini millesimo vicesimo
nono, ut nos certius indagare potuimus.“ Theodricus nefnir
engar heimildir fyrir þessari vitneskju um dánarár Ólafs helga,
og eins og tilvitnunin ber með sér, er hann ekki öruggur um,
hversu rétt þessi tímasetning er. Efi hans er á rökum reist-
ur, þar sem ártalinu 1029, sem gefið er í tilvitnuninni, ber
ekki saman við þann vikudag og dagsetningu, sem gefin eru,
miðvikudaginn 29. júlí. Árið 1029 bar 29. júlí upp á þriðju-
dag, en árið 1030 hins vegar á miðvikudag. Sú vitneskja, sem
fyrst er skráð í sambandi við fall Ólafs konungs, hlýtur að
hafa verið dánardagurinn 29. júlí og ef til vill vikudagurinn.
Hin upprunalega tímasetning Theodricusar á falli Ólafs Har-
aldssonar hlýtur því að vera sú, sem samsvarar skráðum viku-
degi og dagsetningu, en það er árið 1030.
Nú skal vikið að því að rannsaka, hvað Historia de anti-
quitate regum Norwagiensium segir um tímabilslengdina frá
falli Ólafs Tryggvasonar til falls Ólafs tlaraldssonar. Þar er
getið um, að eftirmaður Ólafs Tryggvasonar hafi verið Eirik-
ur jarl, sem stjórnaði Noregi í 15 ár. Eftir Eirík komu tveir
synir hans, Sveinn og Hákon, sem ríktu í tvö ár. Enn fremur
upplýsir Theodricus, að Ólafur helgi hafi verið konungur í
15 ár, en þannig, að fyrsta stjórnarár Ólafs var ófriðarár, sem
bar upp á síðasta stjórnarár bræðranna Sveins og Hákonar.
Ef reiknað er út, hversu mörg ár liðu samkvæmt Theodricusi
frá valdatöku Eiríks jarls til falls Ólafs helga, verður útkom-
an 31 ár, nefnilega 15+2+15, að frádregnu því eina ári, sem
Ólafur konungur ríkti ásamt jörlunum Sveini og Hákoni.
Fræðimaðurinn H. Koht tók eftir, að samkvæmt Historia de
antiquitate regum Norwagiensium hefði liðið 31 ár milli falls
Ólafs Tryggvasonar og falls Ólafs Haraldssonar. Með þvi að
velja seinni atburðinum árið 1029, komst Koht að þeirri nið-
urstöðu, að Theodricus hefði þá tímasett orrustuna við Svoldur