Skírnir - 01.01.1967, Blaðsíða 162
Skýrslur og félagatal
Skírnir
uðu reikninga Bókmenntafélagsins. Verðbréf og sparisjóðsbækur voru hins
vegar í eldtraustum skáp og varðveittust. Gjaldkeri kvaðst hafa skýrt end-
urskoðendum og forseta félagsins frá þessu vanhæfi á reikningunum, og
hefði orðið að ráði að leggja þá þannig fram, en þeir væru undirritaðir
með fyrirvara, þvi að við nánari athugun væri líklegt, að takast mundi
að gera grein fyrir þorra útborgananna.
4. Kosning endurskoðenda. Guðmundur Benediktsson borgargjaldkeri
hafði beðizt undan endurkjöri. Forseti lagði til, að Guðmundur Skaftason
hdl. kæmi í hans stað, og voru hann og Gústav A. Ágústsson samþykktir
í einu hljóði.
5. Fundarstjóri gaf orðið laust. Jón fvarsson lýsir ánægju sinni með,
að nú skuli ætlunin að rétta þá seinkun, sem verið hefði á Skírni að und-
anförnu. Hann telur hins vegar nær 30 þús. kr. rekstrarhalla á reikning-
um félagsins óviðunandi. Endurskoða þurfi árgjöld og athuga, hvort unnt
sé að spara. 1 því tilliti sé athugandi dreifingarkostnaður, sem erfitt hafi
verið að fá upplýstan undanfarið. Jón telur á vanta, að bækur félagsins
séu kynntar nægilega, en lýsir ánægju sinni með, að loks á siðasta ári
hafi verið prentað félagatal eftir nokkurra ára hlé, kveðst óska þess að
fá það árlega.
Forseti kveður aðalviðfangsefni félagsstjórnar nú vera að tryggja fjár-
hag félagsins. Bókavörzlu, sem gert sé ráð fyrir í lögum félagsins, segir
hann vera í höndum Jóns Aðalsteins Jónssonar og Bókaverzlunar Sigfúsar
Eymundssonar, en siðarnefndi aðilinn annist dreifinguna og hljóti 33*4%
í þóknun fyrir. Hann telur nauðsynlegt að safna fleiri félögum, en á þvi
séu þó vissir örðugleikar, fyrr en bókaútgáfa félagsins hafi verið efld.
Ritari, Óskar Halldórsson, segir, að 85 nýir félagar bætist nú við þá,
sem taldir eru i Skírni 1966. Félagar séu þar með orðnir 992, að viðbætt-
um 25 heiðursfélögum og 7 mönnum í stjórn, samtals 1024 félagar.
6. Fundurinn afgreiddi reikninga félagsins til frekari aðgerða. Fleira
gerðist ekki. Fundi slitið.
lakob Benediktsson. Einar Siguidsson.
Reikningar
Hins íslenzka bókmenntafélags og skjöl í vörzlu gjaldkera félagsins eyði-
lögðust algerlega í eldsvoða í Iðnaðarbankahúsinu i marz 1967, og hefur
reynzt mjög tafsamt að ná hingað og þangað að gögnum, sem byggja
mætti á reikninga fyrir tímabilið 1. des. 1965, er síðasti ársreikningur
var gerður, til marz 1967. Við uppgjör á reikningi yfir þetta tímabil nú
fyrir aðalfund vantaði nokkuð á, að hægt væri að gera grein fyrir inn-
og útborgunum að öllu leyti, og voru reikningar þannig lagðir fram á
fundinum. Vegna þess að gjaldkeri telur sig síðan hafa fengið nokkrar
upplýsingar og eiga von á fleiri, er talið rétt að birta ekki reikningana
fyrr en í næsta Skírni, en þá ættu að vera komnar í hendur gjaldkera
allar þær skýringar, sem hægt er að fá. Félagsstjórmn.