Skírnir - 01.01.1967, Blaðsíða 101
Skíriúr
Um Æverlinga
99
mun vera landnámsjörð Þorkels vingnis, sem nam land „um
Vatnsskarð allt og Svartárdal". Annar maður nam Svartárdal
i Skagafirði og er hér því átt við Svartárdal í Húnavatnssýslu
og þó aðeins niður að Grindarlæk eða Gilslæk og ekki nema
að austanverðu, eins og prófessor Ólafur Lárusson telur. Ey-
vindur sörkvir hefur numið tunguna alla milli Svartár og
Blöndu, en ekki Blöndudal að vestanverðu, og eru því skakkt
sett landamæri á uppdráttunum, sem fylgja Landnámuútgáfu
Einars Arnórssonar. Eyvindarstaðir áttu öll afréttarlönd upp
af tungunni austan Blöndu, allt til Hofsjökuls, fram til 1895,
er þau voru seld upprekstrarfélaginu. Aftur á móti finnst mér
ósennileg sú tilgáta Ólafs Lárussonar, að Þorkell vingnir hafi
búið niðri í Svartárdal, því að hann er alltaf talinn með land-
námsmönnum i Skagafirði og hefur því verið búsettur þar.
Eyða er á milli landnáma Sæmundar suðureyska og Álfgeirs
á Álfgeirsvöllum, nema Víðimýri sé talin til Vatnsskarðs, og
er hún eina forna höfuðbólið á þessum slóðum.
Sá eini ættleggur, sem talinn er frá Þorkeli vingni, lenti
fljótlega vestur í Vatnsdal og Víðidal, og Goðdælir hafa eign-
azt Víðimýri, sem lá utan landnáms þeirra. Þorgeir, sonur
Eiríks í Goðdölum, er því sennilega sá Þorgeir á Víðimýri,
sem gifti Helgu dóttur sína Þorkeli Gunnvaldasyni, Rauða-
Bjarnarsonar, og bauð Agli gamla Skallagrímssyni til brúð-
kaupsins, sem mun hafa verið 970—980. Brynleifur Tobías-
son hefur bent á. að Helgu-nafnið muni vera komið frá móð-
ursystur Þorgeirs, konu Ketilbjarnar gamla.
Þorgeir Eiríksson var kvæntur Yngvildi Þorgeirsdóttur
(Höfða-Þórðarsonar?), og varð nafn hennar kynfast í Goð-
dalaætt. Rannveig dóttir þeirra var gift Víga-Bjarna Brodd-
Helgasyni, sem Kristnisaga telur með mestu höfðingjum á
fslandi 981, en Ingvildur dóttir þeirra giftist Þorsteini, syni
Síðu-Halls, og er þaðan mikil ætt. Hugsanlegl er, að Þorgeir
á Víðimýri hafi verið tvikvæntur og önnur hvor kvenna hans
verið dóttir eða sonardóttir Þorkels vingnis.
Konurnar eru ættræknar, og með þeim barst nafn tJlfhéð-
ins norður fyrir Öxnadalsheiði. Frá Húnröði Véfröðarsyni
er rakin ætt niður til Hallberu, konu Markúss á Melum,