Tímarit um menntarannsóknir - 01.06.2012, Page 18

Tímarit um menntarannsóknir - 01.06.2012, Page 18
18 Gunnlaugur Sigurðsson og Kristján Kristjánsson leikreglurnar, vitandi eða óafvitandi. Hver er „regla“ eða „reglubrot“ þess sem ekki vill læra? Paul Smeyers (2006), sem veitir gott yfirlit um möguleika winch-ískrar aðferðafræði í menntunarfræðum, tekur dæmi af skilningi á því hvers vegna tán- ingsstúlkur úr lágstétt virðist í sumum vestrænum samfélögum beinlínis sækjast eftir því að verða óléttar og þar með, að því er virðist, brjóta gegn reglukerfi menn- ingar sinnar. Félagsvísindamenn hafi hins vegar lært að skilja það „reglubrot“ sem „reglufylgni“ innan jaðarmenningar þar sem það að ýta barnavagni ljái annars marklitlu lífi merkingu og tryggi félags- lega virðingarstöðu innan kima. Hvað fær barn til að læra? Fyrsta atlaga okkar að spurningunni um merkingartengsl eða rauntengsl felst í því að velta fyrir sér hvað fái lítil börn yfirhöfuð til að læra. Fullkomna svarið við þessari spurningu er því miður gagns- laust: Það sem fær barn til að læra er það sem fær það til að læra! Gagnslaust? Ef til vill ekki alveg. Það segir okkur að við munum þurfa að láta okkur nægja ófull- komin svör við spurningunni ef við ætlum að hafa eitthvert gagn af þeim, spurningu sem mæður skólabarna um alla jörð spyrja því ákafar sem meiri lærdóms er krafist af börnunum; feður þeirra ekki minna; kenn- arar og stjórnendur allra þeirra skóla sem eru vettvangur sífellt lengri skólavistar æskunnar. Spyrja vonglöð, því að þótt fyrri svör hafi reynst ófullkomin og enn sem fyrr sé erfitt að fá börn til að standast þær námskröfur sem skólinn setur þeim þá muni nýir hugsuðir með nýjum kenn- ingum og nýjum rannsóknum í síðasta lagi mjög bráðlega leysa gátuna. Í stuttu máli sagt muni þekkingariðnaðurinn sem vaxið hefur kringum þessa spurningu endanlega komast að raun um hvernig hægt sé að fá börn til að læra að vild okkar. Lausnarorðið er reyndar löngu fundið, námshvöt. Aðeins á eftir að setja það inn í réttu töfraþuluna. Börn læri af námshvöt og því sé ekki annað en að vekja hjá þeim slíka hvöt og sjá til þess að hún fái útrás í verki, í námi þeirra. Það sem upp á vantar hefst síðan með öðru lausnarorði, sjálfsaga, sem sömuleiðis bíður sinnar töfraþulu í launhelgum menntavísindanna. Bæði þessi hugtök gegna lykilhlutverki í allri umræðu um nám og kennslu en eru um leið vandmeðfarin og jafnvel varhuga- verð, einkum ef þess er ekki gætt til hvers þau taka nákvæmlega. Við skulum því at- huga, áður en lengra er haldið, hvers við spurðum í upphafi: „Hvað fær barn til að læra?“ Spurningin er ögn óræð. Tekur hún til alls þess sem veldur því að barn lærir í reynd eða einungis til þess sem það vill læra? Tekur hún til þess, til dæmis, sem það lærir af því að leika sér? Barnið leikur sér ugglaust af hvöt en trúlega fremur af hvöt til að leika sér en hvöt til að læra og ekki virðist það beita sig mikilli hörku til að halda sig við efnið heldur. Sama gildir þá um aðrar athafnir sem eru barninu þó lærdómsríkar; þær eru ekki nauðsynlega sprottnar af hvöt þess til að læra né knúnar af sjálfsaga til náms. Eða hvað af því sem barn reynist kunna á einhverju augnabliki ævi sinnar hafði það beinlínis hvöt til að læra eða þvingaði sig til þess? Ellegar það sem við sjálf kunnum? Jafnvel er réttmætt að spyrja hvort barn hafi hvöt til að læra
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.