Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2012, Side 22

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2012, Side 22
G u ð n i E l í s s o n 22 TMM 2012 · 4 Randveri Sigurvinssyni í kærumáli félagsins á hendur honum töldu sig vera málsvara skynseminnar sem vissulega má sjá sem ljós í trúarþoku liðinna alda. Þeir standa kjaftæðisvaktina með Vantrú60 gegn kukli, trú og gervi- vísindum og hljóta því sjálfkrafa að vera vitsmunamegin í umræðu þar sem deilt er á kennara í guðfræði- og trúarbragðafræðideild. Svo er þó ekki. Þessir einstaklingar brugðust sannleikanum vegna þess að þeir mynduðu sér skoðun án þess að skoða öll fyrirliggjandi gögn. Hugmyndir þeirra um Bjarna Randver og kennsluhætti hans voru mótaðar af trúarsannfæringu fremur en efnislegu mati, því að kennarinn fékk ekki að njóta vafans þar til hið sanna í málinu yrði leitt í ljós. Vissulega getur verið erfitt að greina á milli efahyggju leitandi huga – vísindalegs efa er sprettur af striti – og efa letingjans sem nennir ekki að komast að niðurstöðu um eitt né neitt. En það er aðeins með því að feta einstigið milli trúarvissunnar og innantómrar efahyggju, milli Karybdísar fordómanna og Skyllu fáfræðinnar, sem við þokum okkur áleiðis í skilningi á samfélaginu og efnisheiminum. Enginn getur búist við því að standa vísindanna megin í öllum álita- málum. En ef við horfum á umhverfi okkar af jákvæðri gagnrýni á sama tíma og við erum full undrunar yfir margbreytileika veraldarinnar verður okkur fyrirgefið þótt við hlaupum stundum á okkur. Tilvísanir 1 „Yfirlýsing vegna kæru á hendur stundakennara HÍ“, Fréttablaðið 13. desember 2011, bls. 18; og „Yfirlýsing vegna kæru á hendur Bjarna Randveri Sigurvinssyni stundakennara sem send var Siðanefnd HÍ“, Morgunblaðið, 13. desember 2011, bls. 20. Undirskriftirnar voru birtar á vefsíðum miðlanna. 2 Egill Helgason: Athugasemd við fésbókarfærslu Árna Svans Daníelssonar um mál Bjarna Randvers frá 27. desember 2011: http://www.facebook.com/arni.svanur.danielsson/ posts/197833200310415 [sótt 18. janúar 2011]. 3 Um yfirlýsingu Reynis hefur víða verið fjallað, m.a. í grein Barkar Gunnarssonar: „Heilagt stríð Vantrúar“, Morgunblaðið 4. desember 2011, bls. 18–21. Einnig má nefna ítarlega samantekt Hörpu Hreinsdóttur sem skrifuð var á tímabilinu 8. janúar til 22. febrúar 2012, en henni hefur verið safnað saman í eitt skjal, „Vantrú gegn Bjarna Randver Sigurvinssyni“: http://harpa- hreins.com/vantru_gegn_bjarna_randveri.pdf [sótt 4. september 2012]. Í greinargerð sinni „Tímatafla í kærumáli Vantrúar á hendur Bjarna Randveri Sigurvinssyni stundakennara fyrir Siðanefnd HÍ (nr. 1/2010)“ rekur Bjarni Randver í ítarlegu máli hvernig vantrúarfélagar undir- bjuggu kærumálið og styðst þar við fjöldamörg gögn. Mikilvægasta varnarskjalið sem vísað er til í tímatöflunni er líklega „Söguskoðun Bjarna Randvers“ [framvegis „SBR“], en þetta er umræðuvefur félagsmanna Vantrúar sem lekið var til Bjarna Randvers. Sjá Reynir Harðarson: „SBR“, 12/2/2010, kl. 15:22. 4 Reynir Harðarson: „SBR“, 5/2/2010, kl. 11:46. 5 Sjá t.d. frétt Egils Ólafssonar á vefsvæði Morgunblaðsins: „Var ekki brotlegur í starfi“, 16. febrúar 2012: http://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/02/16/var_ekki_brotlegur_i_starfi/ [sótt 15. október 2012]. 6 Vantrúarfélagar neituðu því að Bjarni Randver hefði verið kærður til lögreglu en urðu að draga þær yfirlýsingar til baka þegar Bjarni lagði fram gögn frá lögreglustjóra máli sínu til stuðnings. Sjá til dæmis athugasemdir núverandi formanns, Egils Óskarssonar, við ritstjórnargreinina
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.