Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2012, Page 36

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2012, Page 36
B j a r n i R a n d v e r S i g u r v i n s s o n 36 TMM 2012 · 4 Ég var kallaður helgimyndabrjótur í kennslu við Háskóla Íslands og fannst eins og verið væri að líkja mér við þá sem vandalísera legsteina eða eitthvað. En þarna er hin fræðilega skýring á hugtakinu og ég get stoltur játað að hafa verið helgimynda- brjótur í bráðum áratug.46 Það sýnir vægi Helga hjá vantrúarfélögum að Óli Gneisti Sóleyjarson stjórnar aðdáendasíðu hans á Facebook þar sem 6319 manns höfðu skráð sig 20. mars 2010 en allmargir láta þar í ljós andúð sína á þjóðkirkjunni og kristindómi og taka undir ýmis fleyg orð frá Helga.47 Minnismerki Viðbrögð landsmanna við andláti Helga Hóseassonar 6. september 2009 sýna ljóslega hversu mikillar lýðhylli hann var farinn að njóta. Fréttin um andlát hans í Morgunblaðinu var höfð með sama sniði og tíðkast um æðstu embættismenn, rithöfunda og listamenn þjóðarinnar.48 Í heilsíðugrein í Fréttablaðinu var hans minnst sem „baráttuharðjaxls og kommúnista“ sem hefði barist „fyrir betra lífi í heiminum til handa öllu mannkyni“ og birtar myndir af m.a. skyrslettum hans og handtöku.49 Á Facebook var stofnaður hópur sem vildi reisa honum minnisvarða á horni Langholts- vegar og Holtavegar. Stjórnandi þess, Alexander Freyr Einarsson, gaf þar upp söfnunarreikning, samþykktan af aðstandendum Helga, sem félags- menn gætu borgað inn á en söfnuninni var gerð skil í fjölda fjölmiðla, m.a. í fréttatímum sjónvarpsstöðvanna og á forsíðu Fréttablaðsins.50 Fram kemur að á aðeins þremur dögum höfðu 20.000 manns skráð sig í félagið, mun fleiri en höfðu þá skorað á Ólaf Ragnar Grímsson forseta Íslands „að stað- festa ekki fyrirvara við ríkisábyrgð sem Alþingi samþykkti í lok ágúst vegna Icesave samninganna við bresk og hollensk stjórnvöld“,51 en 20. mars 2010 voru meðlimirnir alls orðnir 30.045.52 Ýmsir borgarfulltrúar, svo sem Björk Vilhelmsdóttir og Oddný Sturludóttir, tóku undir mikilvægi þess að reisa minnisvarða53 og var málið tekið til umræðu á borgarráðsfundi í Ráðhúsi Reykjavíkur. Fram kemur í Fréttablaðinu að Samfylkingin hafi þá síðar um daginn ætlað að leggja „fram þá tillögu að tekið verði frá svæði í borgar- skipulaginu fyrir minnisvarða Helga Hóseassonar“.54 Dagur B. Eggertsson, oddviti flokksins í borgarstjórn, segir í viðtali við Fréttablaðið daginn sem tillagan var lögð fram: Ég finn fyrir því í samfélaginu að þótt fólk sé ekki endilega sammála öllu sem Helgi sagði, þá ber það virðingu fyrir þeirri staðfestu sem hann sýndi í sinni áralöngu baráttu […]55 Vinstri grænir lögðu einnig fram sambærilega tillögu í borgarráði en svo fór síðar í mánuðinum að meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks vísaði báðum tillögunum frá.56 Alexander Freyr Einarsson lét
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.