Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2012, Page 103

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2012, Page 103
D ó m a r u m b æ k u r TMM 2012 · 4 103 eða mótrök í tölusettum liðum uns hann í lokin telur upp meginniðurstöð- ur bókarinnar í 30 atriðum eða „þesum“. Þótt þetta sé óneitanlega held- ur fastmótað mynstur hefur það þann kost að setja í upplýsandi samhengi fjölda samtímahugmynda og tilgátna um samfélags- og efnahagsmál, réttlæti, lýðræði og sjálfið. Höfundur er ekki ragur við að kynna lesendum skoðanir sínar en með því að fylgja „miðjunni hörðu“ virðist mér hann oft forðast að taka eina stefnuna fram yfir aðra sem illskárri kost. Þótt það teldist seint til dygða í stjórnmálum þarf það alls ekki að vera ókostur hjá fræðimanni heldur til marks um vönduð vinnubrögð, sem birtast líka í því hversu ófeiminn Stefán er að viðurkenna það þegar hann skortir rök fyrir ákveðinni tilgátu eða til þess að geta tekið afstöðu. Þótt „miðjan“ eigi ekki að vera neitt „miðjumoð“ hefði maður þó stundum viljað sjá minni var- færni í umfjöllun hans um t.d. ólíkar kenningar um kosti og galla hnattvæð- ingar en kannski er þar á ferðinni efni sem glannalegt væri að fella einfaldan dóm um. Sjálfur leggur hann áherslu á að reyna fremur „að finna viðunandi rök fyrir sæmilega þolanlegu skipulagi samfélagsins“ (219) og að hann sé umfram allt „spurnarmaður, ekki svara- maður!“ (161). Almennt má segja að höfundur sé jafnan glöggur á veilur í málflutningi þeirra sem hann fjallar um. Það vill stundum brenna við í gagnrýnni umfjöllun manna um kenningar sem þeir eru ósammála að þeir fari töluvert mýkri höndum um þær sáttalausnir sem þeir tefla sjálfir fram og ber lof Stefáns á t.a.m. ígrundað lýðræði (þ. deliberative Demokratie) Habermas eða hnekkingar- lýðræði (e. contestory democracy) Pettits þess merki (224–227). Eins hefði hann mátt gera betur grein fyrir tilgátu sinni um að til séu samréttindi „hópa, jafnvel heilla samfélaga“ (243). Því eru þá ekki líka til samsvarandi skyldur hópa? Og erum við þá ekki farin að brjóta okkur leið út úr einstaklingsmiðaðri hugsun frjálshyggjunnar um réttindi og skyldur og gera grein fyrir ákveðnum veruleika sem hún er blind á? Í umfjöllun sinni um rökvísi Hag- mennisins, þ.e. eigingirnina eða sér- gæskuna, tekur Stefán fram að strangt til tekið trúi frjálshyggjumenn því ekki endilega að menn séu eigingjarnir í eðli sínu og vitnar því til sönnunar í skil- greiningu Friedman-hjónanna á sér- gæsku („self-interest“): „It is whatever it is that interests the participants, what- ever they value, whatever goals they pursue.“ (245) Einhvern veginn virðist mér þá sem botninn sé dottinn úr þeirri kenningu að ekki megi trufla gerendur á frjálsum markaði sem leitist við að hámarka eigin hag (og gagnist þar með óbeint samfélaginu öllu skv. kenning- unni um ósýnilegu höndina): Stefán tekur fram á sama stað að það sé „ill- mögulegt að vera bæði Friedman-sinni og telja að menn geti valið milli græðgi og gæsku“ (244). En ef „eigin hagur“ getur merkt hvað sem er, þá getur hann allt eins birst sem meðvituð andstaða við græðgi, hvernig sem við síðan hugs- um okkur þá andstöðu. Að þessari mót- sögn virðist mér ekki hugað í bókinni. En atriði sem þetta breyta því ekki að í Kreddu í kreppu er að finna urmul af skörpum greiningum sem gagnlegt er að skoða oftar en einu sinni. Homo historicus Í upphafi Örlagaborgarinnar vekur sagnfræðingurinn Einar Már Jónsson athygli á því að „þrátt fyrir hrunið og það sem í kjölfar þess fylgdi, er eins og ýmsar af […] kennisetningum [frjáls- hyggjunnar] standi enn án þess að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.