Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2012, Page 140

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2012, Page 140
D ó m a r u m b æ k u r 140 TMM 2012 · 4 listina það tækifæri sem hún veitir okkur til að hverfa inn í vitund annarr- ar manneskju, máta okkur við hugsanir, tilfinningar og upplifanir án þess að meginatriðið sé frásögn af atburðum og samskiptum fólks líkt og í sagnaskáld- skap. Sökum þess að ljóðlistin er gjarn- an list hins óræða og hálfsagða er kannski enginn lestur jafn skapandi og lestur ljóða. Sigurði Pálssyni er skapandi hlutverk lesandans mjög hugleikið. Og hann hefur á ferli sínum ort á magnað- an hátt um lestrarnautnina. Í Ljóðorku- flokknum lýsir hann til dæmis því í ljóðinu Í skógarjaðrinum IV hvernig ljóðabók Þorsteins frá Hamri Lángnætti á Kaldadal reyndist honum öflugur andlegur bakhjarl síðasta vetur hans í menntaskóla og hann vottar virðingu sína ýmsum ljóðskáldum sem hafa haft áhrif á hann. Skáldskapur Sigurðar Pálssonar er á margan hátt lofgjörð um þann skapandi undramátt sem getur búið í skynjun, upplifun og íhugun. Hann er hylling andlegs lífs, þess unaðar sem frjó og skörp hugsun getur veitt. Í Ljóðorku- flokknum finnur lesandinn hvatningu til að dýpka innsæi sitt, leggja sig fram um að reyna að sjá það sem skiptir máli. Þar er talað um hvernig hægt sé að horfa þannig að svarthvítar myndir öðlist lit, teikning hreyfist af sjálfu sér. Kannski sprettur innilegasta gleðin yfir fegurð- inni af því að sjá undrunarefnin þar sem síst mætti ætla að þeirra væri von, koma auga á hið dularfulla í hinu augljósa. Í hinum áhrifamiklu þakkarorðum sem skáldið beinir að æðri máttarvöldum og vísað er í hér að framan er á yfirborðinu ekki þakkað fyrir neinn beinan árangur, ávinning eða sigur, heldur aðeins það að hafa fengið að sjá og skynja. Skáldið segir hreinlega: þakka þér fyrir að sýna mér dýrðina … En kannski er einmitt það að veitast slík sýn og vera fær um að meta hana að verðleikum einn mesti ávinningurinn, stærsti sigurinn. Sigríður Albertsdóttir Viska kattarins Vigdís Grímsdóttir: Trúir þú á töfra? JPV- útgáfa 2011 Saga bernsku minnar líður undir gler- hvelfingunni innan múrsins og eftir á að hyggja hefði ég ekki viljað missa af neinu; það er ég viss um núna þótt ég hafi ekki alltaf hugsað þannig þegar ég var stelpa. (9) Á þessum orðum hefst sagan. Hún er sögð í 1. persónu út frá sjónarhorni ungrar stelpu í þorpi sem er umlukið harðgerðum múr og lokað af undir gler- kúpli. Þorpið liggur í djúpum dal ein- hvers staðar á Íslandi en hvar það er nákvæmlega staðsett veit enginn, ekki einu sinni fólkið sem býr í þorpinu. Sumir hafa verið narraðir inn í þorpið með gylliboðum, aðrir koma þangað nauðugir viljugir. Múrsins gæta verðir sem sjá til þess að enginn komist til eða frá þorpinu en öllu stjórna óþekktir aðilar sem virðast vera að gera tilraunir með íbúana. Þeir úthluta hverjum og einum ákveðið hlutverk og ef viðkom- andi stendur ekki undir hlutverki sínu er voðinn vís. Í þorpinu er verið að æfa upp leikrit, sem enginn veit um hvað snýst, en eins og í öllum „leikritum“ verða „leikararnir“ að sjá til þess að ekk- ert fari úrskeiðis í sínu „hlutverki“. Snemma lærir fólkið, líka stelpan, að læðast meðfram veggjum og segja sem minnst. En það hugsar og skráir niður minningar sínar sem eru að lokum, líkt og frelsið, teknar frá því og læstar niðri í
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.