Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2014, Side 104

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2014, Side 104
R e y n i r A x e l s s o n 104 TMM 2014 · 2 hans nema skóarinn Hans Sachs. Hann tekur Walther að sér, segir honum dálítið til, og með hjálp hans (svo að ofurhratt sé farið yfir sögu) fær Walther tækifæri til að syngja aftur, og nú fyrir allt fólkið í Nürnberg, sem fellur í stafi af hrifningu og krefst þess að Walther fái sigurlaunin. Þeir sem hafa reynt að sýna að Meistarasöngvararnir séu andgyðinglegt verk virðast almennt telja að það markmið geti náðst með því að tína til einhver atriði sem eiga að benda til að Beckmesser sé skopmynd af gyðingi. Nákvæmlega hvernig það eitt á að sanna jafnkrassandi fullyrðingar og að gyðingaandúð (anti-semitism) sé „ofin inn í hugmyndafræðilegan vefnað Meistarasöngvaranna“,29 er aldrei skýrt út. Allflestir sem reyna að sýna fram á að Beckmesser sé gyðingur gera sér fulla grein fyrir að það er einmitt það sem borgarritari í Nürnberg á miðri sextándu öld hefði ekki með nokkru móti getað verið: Gyðingar höfðu verið gerðir brottrækir úr borginni árið 1499, og hefðu hvort sem er ekki mátt gegna slíkri stöðu fyrir þann tíma, hvað þá eftir. Hvaða merkingu getur það haft að persóna í óperu, sem getur augljóslega ekki verið gyðingur, eigi samt einhvernveginn að vera það? Þegar Charles Rosen (sem var píanóleikari, höfundur margra frábærra bóka um tónlist og lézt í hittifyrra, hálfníræður), skrifaði ritdóm um nýju Grove-alfræðibókina um óperu vék hann að kenn- ingum Barrys Millington um Beckmesser: „Sú staðhæfing Millingtons að Beckmesser, tónlistardómarinn smásmugulegi í Die Meistersinger hafi átt að skiljast sem skopstæling á gyðingi hefur vakið heilmikla eftirtekt, en í henni er einungis litlu meira en korn af sannleika.“30 Millington brást ókvæða við: Ég hef aldrei fullyrt að „Beckmesser [í Die Meistersinger] sé gyðingur„ eða að pers- ónan „hafi átt að skiljast sem skopstæling á gyðingi.“ Það sem ég hef haldið fram, í langri grein með ítarlegum heimildum í Cambridge Opera Journal (nóvember 1991) er að „gyðingaandúð sé ofin inn í hugmyndafræðilegan vefnað Die Meistersinger og að framsetning Beckmessers feli í sér andgyðingleg einkenni svo að ekki verði um villzt.“ Niðrandi framsetning Rosens misþyrmir fullyrðingu minni næstum jafnafkáralega og Beckmesser misþyrmir söng Walters í óperunni.31 En hver, með leyfi, er nákvæmlega munurinn á að halda því fram að persóna í leikverki sé gyðingur og því að hún hafi nógu marga gyðinglega (eða „andgyðinglega“) eiginleika til að ekki verði um villzt að það eigi að skilja hana sem gyðing? Eins og Rosen segir (raunar í allt öðru samhengi) í upp- haflegu greininni, þá er rétt eins og Millington ímyndi sér að Beckmesser sé raunveruleg manneskja, en ekki persóna í leikverki. Sama virðist gilda um miklu fleiri sem líta á Beckmesser sem einhverskonar gyðing, en þó ekki. Hugsa þeir sér að hann sé ekki gyðingur samkvæmt fæðingarvott- orði, en leiki gyðing á sviðinu? Hættir hann því þegar hann er ekki að koma fram í óperunni? Andsvar Rosens við umkvörtun Millingtons var einfalt: „Annaðhvort fullyrðir Millington að samtímamenn Wagners hefðu átt að skilja Beckmesser sem skopstælingu á gyðingi, eða hann gerir það ekki.“
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.