Hugur - 01.01.2015, Side 97

Hugur - 01.01.2015, Side 97
 Efi, skynsemi og kartesísk endurhæfing 97 „Þetta yrði fyrirtaks ráð,“ tekur Epistemon undir, ef við gætum auðveldlega beitt því, en þú [Eudoxus] veist vel að skoðanir þær sem við veitum fyrst viðtöku í ímyndunarafli okkar eru svo djúpt ristar að vilja okkar einum og sér gæti með engu móti tekist að afmá þær, nyti hann ekki hjálpar ákveðinna knýjandi raka. [HR I:312–313] „Ég vonast einmitt til að geta kennt þér nokkur af þessum rökum,“ svarar Eu- doxus, og fer síðan að ræða efasemdarökfærslur sem eru nánast hinar sömu og í Hugleiðingunum. Ég hef fært rök fyrir því, eins og margir á undan mér, að fyrirfram-efi sé ærið vafasamt fyrirbæri. Ég hef einnig fært rök fyrir því að hann sé gagnslaus – og jafnvel andstæður – tilgangi Descartesar. Það er tímabært að við hættum að hugsa okkur að hann tengist yfirleitt kartesískri aðferð. VII Í þessum kafla og næstu þrem dreg ég upp mjög afmarkaða greinargerð fyrir framvindu kartesísks efa gegnum þau stig sem sýnd eru í Hugleiðingum I–III. Ég læt mér lynda ýmsar einfaldanir, þar sem markmið mitt er að færa frekari rök fyrir skoðunum sem áður eru komnar fram, leiða í ljós nokkur frekari atriði í aðferð Descartesar sem ég tel mikilvæg, og sýna með frekari hætti hvernig skilningur á aðferðinni eflist þegar endurhæfingartilgangur hennar er hafður í huga. Við skulum byrja á byrjuninni. Enda þótt aðrir geri miklu meira úr þeim, eins og við höfum séð, sýnast mér aðeins tvö atriði aðferðarfræðilega áhugaverð í upphafskafla Fyrstu hugleiðingar: hin svolítið óljósa yfirlýsing sem helgar allt verkið því markmiði að grundvalla „eitthvað traust og varanlegt í vísindunum“ og sú ákvörðun, sem skoða má sem beina afleiðingu af þessum tilgangi, að verja tíma sínum í að „rífa til grunna allar fyrri skoðanir mínar í fyllstu alvöru, og án þess að hika“. Frankfurt sér þessa síðari ákvörðun sem „ótvíræða ákvörðun“ Renés um að reyna að efast um skoðanir sínar almennt, „að varpa fyrir róða [fyrirfram, samkvæmt Frankfurt] öllum skoðunum sínum“, en því get ég ekki verið sammála. Vissulega er um að ræða ákvörðun af hálfu Renés um að reyna að efast almennt um skoðanir sínar, en engar vísbendingar eru um að það eigi að gerast áður en efasemdarökfærslur eru settar fram og ekkert loforð um að þessi tilraun til að efast muni takast. Önnur efnisgrein Fyrstu hugleiðingar er kannski enn mikilvægari en upphaf- skafli hennar. René segir: skynsemin segir mér, að ég hljóti að gæta þess jafnvandlega að fallast ekki á neinar þær skoðanir sem ég veit ekki fyrir víst að eru áreiðanlegar og óvefengjanlegar, og að fallast ekki á hinar sem eru augljóslega rangar. Þessu fylgir að hafi ég einhverja ástæðu til að efast um hverja fyrir sig, Hugur 2015-5.indd 97 5/10/2016 6:45:20 AM
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.