Hugur - 01.01.2015, Síða 160

Hugur - 01.01.2015, Síða 160
160 Hugur | Ritdómar er haldið að hér verður ekki reynt að gera grein fyrir kostum og löstum hvers kafla fyrir sig eða reynt að gera ágreining um túlkanir á einstökum atriðum. Nægir að segja að höfundarnir hafi allir skilað góðu verki. Hver kafli fyrir sig er í senn skýr, fræðandi og tekst á áhugaverðan hátt við verk þess heimspekings sem er til umfjöllunar hverju sinni. Jafnvel þeir lesendur sem telja sig þekkja vel til verka þeirra gætu átt eftir að sjá þau í nýju ljósi. Hver ritgerð ber vott um sjálfstæða glímu við röksemdir, forsendur og aðferð þess heimspekings sem er til umfjöllunar og oft er unnið með hugmyndir þeirra á spennandi og nýstárlegan hátt. Þess verður þó að geta að á stökum stað örlar á því að bæði lýsingar og greiningar á verk- um, stöðu eða áhrifum þeirra heimspek- inga sem fjallað er um, verði allt að því mærðarlegar. Hvergi keyrir þó um þver- bak og vísast hafa aðstandendur verksins gætt mjög að því að lesandinn fái hvergi tilefni til þess að draga hlutlægni ritgerð- anna í efa. Enda hlýtur hver gagnrýninn lesandi að vera vel á verði þegar það ligg- ur fyrir að í flestum ritgerðanna eru ýmist þáverandi eða fyrrverandi nemendur að skrifa um kennara sína. Eins og fyrr segir má frekar líkja ritinu við röð stakra andlitsmynda eftir ólíka höfunda en heildstæðrar myndar af því dýnamíska heimspekilega landslagi sem vísað er til í formála verksins. Þannig má sjá töluverðan mun á því hvernig hver höfundur skilgreinir viðfangsefni sitt. Þannig er sumum ritgerðanna fylgt úr hlaði sem yfirlitum (e. review) um heim- speki viðkomandi heimspekings meðan aðrar leggja áherslu á að greina frá helstu þemum (e. themes) eða viðfangsefnum (e. topics) þeirra. Sumar leggja aftur á móti áherslu á að einungis sé fjallað um tiltek- inn hluta af höfundarverki viðkomandi heimspekings og raunar á það við um þær flestar enda þröngt skorinn stakkur. Hver ritgerð hefur sín höfundareinkenni en þegar allt kemur alls má engu að síður segja að nálgun þeirra sé áþekk. Í ljósi markmiða ritsins myndi þó engan undra ef lesandinn óskaði þess að meira sam- ræmi væri milli efnistaka og framsetn- ingar hverrar ritgerðar. Í því sambandi má t.a.m. nefna að ekki er samræmi hvað varðar notkun millifyrirsagna, efnisskip- un ritgerðanna er ólík og þáttum eins og menntun og helstu áhrifavöldum hvers heimspekings er gerð mjög mismikil skil. Þá má og halda því fram að gera hefði mátt markvissari tilraun til að draga fram þá þræði sem liggja á milli verka og hugmynda þeirra heimspekinga sem fjallað er um og tengja heimspekilega ástundun þeirra að einhverju leyti saman. Með þeim hætti hefði verið hægt að sýna að hvaða leyti íslenskir heimspekingar hafa fengist við sömu viðfangsefni, hvað þeir eiga helst sameiginlegt, hvar ber mest í milli, hvað einkennir þá sem hóp og hvað einkennir fræðilega samræðu íslenskra heimspekinga í samtímanum. Hugsanlega má skýra þá staðreynd að þessi leið var ekki farin í ljósi þess að íslenskir heimspekingar hafa sjálfir ekki lagt ríka áherslu á þennan þátt í verkum sínum. Eins og bent er á í kaflanum um heimspeki Arnórs Hannibalssonar, þá hefur t.a.m aldrei verið sterk hefð fyrir opinni og skrásettri samræðu um heim- spekilega sannfæringu (e. philosophical belief ) innan heimspekideildar Háskóla Íslands (þ.e. heimspekiskorar og síðar námsbrautar í heimspeki). Að öllu framansögðu er rétt að taka fram að Inquiring into Contemporary Icelandic Philosophy er alls ekki sundur- laust verk. Því þó svo að líta megi á hvern kafla sem sjálfstæða svipmynd af tilteknum heimspekingi myndar heildin sterka línulega frásögn í huga lesandans. Stafar það fyrst og fremst af því að efn- isskipanin er krónólógísk, þ.e.a.s. ritið tekur hvern heimspeking til umfjöllun- ar í aldursröð frá þeim elsta til yngsta. Í ljósi þess er ekki annað en eðlilegt að lesandinn nálgist verkið sem sögulega Hugur 2015-5.indd 160 5/10/2016 6:45:45 AM
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168

x

Hugur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.