Læknaneminn - 01.04.1994, Page 110

Læknaneminn - 01.04.1994, Page 110
einhverju öðru gildi, t.d. að nærast, klæðast, eignast bækur o.s.frv. Það, hvað menn í einhverju ákveðnu þjóðfélagi eða þjóðfélagshóp telja rétt og rangt, gott og slæmt, er kallað siðferði þessa hóps. Siðferðið má ráða af því hvernig menn í hópnum hegða sér almennt og af skoðunum þeirra. Skynsemin þarf því í grundvallaratriðum tvennt til að taka skynsamlega ákvörðun: þekkingu á aðstæðum og staðreyndum málsins, og þekkingu á þeim gildum, sem tekið er tillit til. En hún þarf líka að vísa til einhverra almennra reglna um það, hvemig vinna eigi úr þessum upplýsingum; sumar slíkar reglur eru fremur jarðbundnar, eins og t.d. að ekki skuli ljúga, eða að maður eigi að vera góður við börn. En þær geta orðið æ almennari og altækari. Þegar við erum farin að hugsa unr þessar almennari reglur og velta fyrir okkur skynsamlegum gmndvel li þeirra erum við farin að hugsa um siðfræði. TVÆR GRUNDVALLAR- KENNINGAR í SIÐFRÆÐI S iðfræðin fjal lar sem sagt um fræðilegar undirstöður siðferðis okkar og reynir að setja fram vísindalega umQöllun um það, hvernig við getum réttlætt athafnir okkar. Aðferðum siðfræðinga svipar oft til aðferða raunvísindamanna: annars vegarereinhververuleiki, sem í þessu tilfelli er hið raunverulega siðferði manna, og hins vegar er sett fram kenning eða líkan, sem skýrir og réttlætir þennan veruleika. Stöðugt þarf að prófa líkanið og athuga hvort það kemur heim og saman við siðferðilegarkenndir okkarog aðlaga það og breyta ef með þarf. Kenningum um siðfræði er oft skipt í tvo meginhópa: annars vegar svokallaðar markhyggjukenningar („teleólógískar“ kenningar) eða afleiðingahyggju (,,consequentialism“), og hins vegar skylduboðskenningar („deontólógískar“ kenningar). Fyrmefndu kenningarnar segja, að réttmæti athafnar fari eingöngu eftir hinum raunverulegu afleiðingum hennar, en þær síðarnefndu neita þessu og segja, aó réttmæti hennar fari einnig eða eingöngu eftir einhverju öðru. Tvö grundvallarhugtök siðfræðinnar eru gæði (gott, það að hafa ákveðið gildi) og réttlæti. Markhyggj ukenningar leggja gæða-eða gildishugtakið til grundvallar og skilgreina réttlæti út frá því, en skylduboðskenningar leggja hins vegar oft réttlætishugtakið til grundvallar og skilgreina síðan gæða- eða gildishugtakið út frá því (sumar slíkar kenningar líta reyndar á bæði hugtökin sem óskilgreinanleg). Helsti fulltrúi markhyggju er nytjahyggjan („utilitarianism") , sem leggur ánægju- eða hamingjuhugtakið til grundvallar siðfræðinni og skilgreinir rétta athöfn sem þá, er leiðir ti 1 sem mestrar ánægju eða hamingju sem flestra. Hamingja allra manna er jafngild, hamingja eins manns vegur aldrei meira en hamingja annars, sé hún jafnmikil. Upphafsmaður nytjahyggjunnar var enski heimspekingurinn og lögfræðingurinn Jeremy Bentham (1748-1832), en hann fékk hugmyndir sínar frá siðfræðingnum Hutcheson, sálfræðingnum Hartley og líffræðingnum Priestley. John Stuart Mill (1806- 1873), sem var lærisveinn Benthams, þróaði kenningu Benthams og er frægasti stuðningsmaður hennar. Segja má, aó nytjahyggja sé skynsamleg, ef gert er ráð fyrir því að hvermaður sé alvitur og geti séð fyrir um allar afleiðingar gerða sinna um alla ókomna framtíð. Því miður er því ekki þannig varið, og við verðum að reyna að meta afleiðingarnar út frá líkum eftir bestu getu. Annar ókostur nytjahyggjunnar er sá, að hún virðist í sumum tilfellum stangast á við réttlætiskenndir fólks. Þannig er unnt að ímynda sér annars vegar óréttlátt þjóðfélag, þar sem heildarhamingja fólksins er tiltölulega há, og hins vegar réttlátt þjóðfélag, þar sem heildarhamingjan er minni. Einn kostur nytjahyggjunnarerhins vegar, að hún leggur áherslu á, að okkur beri siðferðileg skylda til að kynna okkur staðreyndir máls eins og okkur er frekast unnt. Annar kostur hennar er, að hún stuðlar að ákveðnum jöfnuði á milli manna og flækir ekki málin með því að vísa til einhvers konar kreddukenndra reglna eða siðaboða, sem menn fýlgjablint og án raka. Sem dæmi um skylduboðskenningar má nefna kenningu þýska heimspekingsins Immanuel Kant (1724-1804), sem grundvölluð er á hinu svokallaða skilyrðislausa skylduboði („categorical imperative“), en það segirað athöfn sé rétt efvið vildum að hún yrði gerð að almennri reglu, en annars ekki. Þannig er rangt að svíkja undan skatti, vegna þess að ef allir * Gottyfirlit á íslenskuyfir nytjahyggju er að finna í bók Kristjáns Kristjánssonar, Þroskakostir, bls. 51-98 (Rannsóknarstofinun í siðfrœði, Reykjavík 1992). Einnig vísast hér til heimilda nr. 16, 17 og 18. 100 LÆKNANEMINN 1 1994 47. árg.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.