Norðurljósið - 01.01.1971, Blaðsíða 34
34
NORÐURLJÓSIÐ
Guðs. Hann verður að muna, að konan hans er veikara ker, og hon-
um her að veita henni virðingu eins og boðið er í 1 Pét. 3. 7.:
„Þér menn, búið með skynsemi saman við konur yðar svo sem
veikari ker og veitiÖ þeim virðingu, eins og þær eru samarfar yöar
að náð Iífsins.“ Eiginmaðurinn á að finna, að hann er fulltrúi Guðs.
Hann á að taka forustuna í því, sem viðvíkur siðferði, trúarbrögð-
um, vera fyrirmynd í kristilegu líferni fyrir augum barnanna, og
beita valdi og aga. Eiginkona, sem lifa vill samkvæmt biblíulegum
reglum um kristið heimili, mun nauðsynlega verða að setja sér, að
vera manni sínum undirgefin og hlýða honum, eins og boðið er svo
mörgum sinnum í biblíunni. Sjá 1 Mós. 3. 16., Efes. 5. 22.—31.
1 Pét. 3. 1.—7. og fleiri staði.
Sæl eru þau ungu hjón, er nógu snemma læra að þekkja áætlun
Guðs með bjónabandiö og einsetja sér að fylgja henni.
5. Vel heppnuð hjónabönd eru þau, sem eiga að standa „í með-
læti og mótlœti“, „unz dauðinn skilur okkur að“.
Hjónabandið á ekki að vera stutt tilraun. Það er til lífstíðar. Fólk,
sem segir, að það „geti alltaf skilið" ef það gangi ekki vel, á fram-
undan sorgir og rústir. Það hugarfar getur Guð ekki blessaö. Sú af-
staða hugarins megnar ekki að mæta vandamálum bjónabandsins.
Þegar fátækt kemur, sjúkdómar, þegar æskan hverfur og aðdrátt-
araflið, þá þarf eitthvað meira en tilrauna-hjónaband: heilaga á-
kvörðun að halda hjónabandsheitin. Kristið fólk verður að skilja,
að hjónabandið á að vera varanlegt, sem ekkert á að rjúfa nema
sjálfur dauðinn.
6. Vel heppnað hjónaband œtti að vera blessað með barneignum.
„Sjá, börn eru gjöf frá Drottni, ávöxtur kviðarins er umbun. Eins
og örvar í hendi kappans, svo eru börn getin í æsku..“ (Ensk þýð.)
Sálm. 127. 3, 4.
Sé hjónabandið barnlaust, er hætlara við skilnaði. Dómsmála-
skýrslur sýna það. Börnin gefa hjónunum eitthvað sameiginlegt,
eitthvað til að lifa fyrir og halda við heimilinu og hjónabandinu.
Bandið verður sterkara, er börnunum fjölgar. Oft hefir eitt barn
bjargað hjónabandi frá skerjum skilnaðar. Lítil börn eru send frá
Guði til að blessa heimiliÖ og binda hjörtu föður og móður saman.
Satt er þaö, hamingjusöm heimili eru til, þótt Guði hafi ekki þókn-