Andvari - 01.01.1930, Blaðsíða 8
4
Pétur Jónsson á Gautlöndum.
Andvari
Árið 1875 er á fundi, sem Jón Pétursson í Reykja-
hlíð boðaði til, stofnað félag með yngri mönnum í Mý-
vatnssveit, er þeir nefndu »Menntunarfélagc. Tilgangur
félagsins að koma á og halda uppi unglingafræðslu í
sveitinni, er almenningur fengi notið. Hver félagsmaður
skyldi gjalda árstillag, minnst 1 krónu, en annars eftir
sjálfs ákvörðun, og fór eftir getu og metnaði, svo að
talsverðum upphæðum nam. Fekkst svo félagssjóður. Af
honum var goldið kaup kennara, er félagsstjórn útvegaði
og réð vetrarlangt. Kennslustaðir fengust á þeim bæjum,
þar sem bezt var hýst, sinn tímann á hverjum stað.
Skylt var þeim, er kennslu nutu, að vera að minnsta kosti
mánuð við námið. — Kennslu þessari hélt félagið uppi
fram um 1880.
En í ársbyrjun 1882 eru samþykkt ný lög fyrir þetta
félag. Nafn þess stytt í »Menntafélag«. Tilgangurinn á-
kveðinn svo: »að glæða og efla bóklega menntun hjá
félagsmönnum, með því að afla sér fræðandi og skemmt-
andi bóka á ári hverju*.
— Þegar hér var komið, hafði lestrarfélag í Mývatns-
sveit dafnað svo, fyrir atbeina hinna yngri manna og
vakinn almennan áhuga, að þar var kostur flestra ís-
lenzkra bóka, af því sem alþýðu fýsti að lesa.
En nú var margt af unga fólkinu búið að læra dönsku
og langaði til að hafa gagn af því.
Á hinn bóginn þótti óskylt af lestrarfélagi almennings
í sveit, að afla erlendra bóka. Þá var það ráð tekið að
ætla Menntafélaginu það hlutverk. Skipuðu það ein-
göngu yngri menn, þeir sem bókhneigðir voru og fróð-
leiksgjarnir og vildu nokkuð til vinna í því efni. — Var
nú leitað til íslenzkra námsmanna við Hafnarháskóla,
um val og kaup á bókum fyrir félagið. Og vegna þess,
að hér var eftir því leitað, sem orðið gæti til fræðslu og