Andvari - 01.01.1930, Blaðsíða 49
Andvari
Baðhey.
45
fundið til þess að geyma matvæli. Hér er um matvæli
að ræða, þótt handa skepnum sé, og hlíta þau því sömu
lögum eins og ef um mannamatvæli væri að ræða. Er
því ekki ófróðlegt að byrja á því, að glöggva sig á þess-
um aðferðum. Með því fæst gleggra yfirlit yfir þá mögu-
leika, sem fyrir hendi eru.
Niðursuða. Vafalaust fullkomnasta aðferð, sem mann-
kynið þekkir til geymslu matvæla, er niðursuðan. Því
miður verður ekki séð, enn sem komið er, að sú aðferð
verði í náinni framtíð tiltækileg til geymslu skepnufóðurs.
Frysting er vafalaust næstbezta aðferðin. Ekki heldur
er hún líkleg að verða nothæf fyrst um sinn.
Reyking og söltun koma vart heldur til greina. Að
salta hey hefur að vísu lengi þekkzt, þó ekki á þann
hátt, sem gert er með mannamatvæli, og líklega er það
af ýmsum ástæðum óhugsanleg aðferð.
Þurkun hefur verið sú aðalaðferð, sem hingað til hefur
verið notuð. í sjálfu sér er aðferðin ágæt, en af því að
vér ráðum ekki sjálfír yfir þurkinum, þá vill oft verða
misbrestur á honum. Það hefur verið reynt með marg-
víslegu móti að verða óháður náttúrunni í því efni og
þurka hey eftir ýmsum aðferðum með vélum, en aðal-
lega fyrir dýrleika sakir reynzt lítt gerlegt. Þó er þeim
rannsóknum enn haldið áfram. Hér á landi var gerð til-
raun í fyrra sumar með vélþurkun, en eftir því sem eg
hef bezt frétt, þá mistókst hún gjörsamlega. Galli á hey-
þurkun er töluvert efnatap, um 15°/o, þegar bezt lætur,
og vitanlega miklu meira, ef hey hrekst, eins og menn
vita of vel af langri reynslu.
Pressun. Aðferð, sem á síðari tímum er mjög farið
að tíðka og einkum hefur verið mikið notuð við með-
ferð og geymslu á skepnufóðri, er pressun fóðursins í
kökur. Alkunnar eru hér á landi ýmis konar fóðurkökur,