Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1923, Page 12

Eimreiðin - 01.10.1923, Page 12
268 VILHJALMUR MORRIS eimreiðin ingar var um að velja á Englandi: Burne ]ones, Alma Ta- dema, Danle Rossetti, G. F. Watts, HolmaV^Hunt, Millafs og marga fleiri má telja, en þó þykir sem hinir fjórir fyrst nefndu hafi borið ægishjálm yfir öllum öðrum. Þá voru og uppi á Englandi fjöldi annara afreksmanna, svo sem skáldin Tenny- son og Brovvning, Thackeray og Dickens, o. fl., rithöfundar og spekingar eins og ]ón Ruskin og Carlyle, snillingurinn Mac^aulay, sagnaritarinn Hallam, Stuart Mill, Huxley, Spencer og Darvvin. Og þótt sú öld standi heldur nærri oss til þess að meta hana rétt, mun óhætt að ætla, að hún ávinni sér nafnið: »Hin síðari gullöld á Englandi*. Tæplega hálfþrítugur var Morris og helstu félagar hans ai- fluttir til Lundúna og áttu .allir sem mest að starfa. Komu nokkru áður út á prent (í tímaritinu, sem fyr er um getið) fyrstu kveðlingar hans, en nú kom út gullfallegt ljóðasafn eftir Ross- etti, og »Ritgerðir um listirnar« eftir Burne Jones. Og nú gaf M., 25 ára gamall, út kvæði sitt »Defence of Guenevere*. En lítinn gaum gaf þjóðin að öllu þessu, er þó voru ágætis- rit. Alþýða í stóru landi þarf góðan tíma til að geta áttað sig á hverju nýmæli, því heldur svo þegar þjóðin er í uppnámi af nýju fjöri og framkvæmdarsemi. 20—30 árum seinna voru nefnd rit öll orðin fræg og fullkunn. Um kvæði Morrisar segir einn listafræðingurinn: »Ekki voru ljóðmæli þessi draumóra skáldskapur, heldur full af kjarki og karlmannshug og »farfinn« á þeim ferskur og skær sem á reflum riddaraborganna. En þess galt skáldið, að fáir skildu þá stíl hans«. Skáldið Swineburne þykir best hafa skilið og dæmt um hin fyrstu rit M. Hann segir: »M. er engum líkur — nema sjálfum sér. Hann heldur í engan, stelur frá engum, stælir engan. Hann hefir lítið af samanhengi og niðurskipan, lítið af list og takti. En hvar er dæmi til hvassari skilnings á hinu sorgþunga, göfga, stóra og ægilega?« Ekki tók M.. sér þetta nærri, enda átti hann fleira um að hugsa og sýsla. Tók hann nú að starfa að listaiðnaðinum með mikilli ákefð, dugnaði og kostnaði; er þar frá mörgu og miklu að segja, en mestu af því verður hér að sleppa. Afrækti M- marga siðfágan um þær mundir, enda oftlega síðan, hataði
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.