Eimreiðin - 01.10.1923, Blaðsíða 52
308
EITT VANDAM. N. T. SKVR.
EIMREIÐIÍP
ef margir af þjónum hennar gerðu slík máttarverk, kenning-
unni til staðfestingar, en slík stórmerki áttu samkvæmt heiti
Krists jafnan að fylgja þeim, sem trúa. En þá skulum við
muna, að Nýja testamentið talar aðallega um trú til krafta-
verka, en ekki um trú á kennisetningar.
Vður mun nú fara að skiljast, hverja lausn eg muni telja
líklegasta á vandamálinu. Eg er sannfærður um, að Nýja
testamentis-skýringin á að leifa sér fræðslu í þessum efnum'
hjá sálarrannsóknamönnunum, þeim sem lengst eru komnir í
þekkingu á þessum hlutum, lengst hafa rannsakað og hleypi-
dómalausast.
]afnvel maður, sem er svo óvinveittur spíritismanum og:
dómprófasturinn í Hróarskeldu, játar þó í riti sínu »Spiritis~
mens Blændværk og Sjæledybets Gaader«, að guðfræðin geti
ekki lengur gengið fram hjá sálarrannsóknunum, hvorki vegna
sjálfrar sín né annara. Hún muni hafa þangað mikið að sækja.
Hann segir meðal annars þetta: »Sérhver af aðalfræðigreinum
guðfræðinnar fær hér sitt hlutverk. Biblíuskýringar-guðfræðin
fær ýmislegt að rannsaka bæði í Gamla og Nýja testamentinu.
Kirkjusagan verður meðal annars að fara að rannsaka ýms-
atriði í æfisögu dýrlinganna. Og samstæðilega guðfræðin fær
nýtt umhugsunarefni út af öðrum eins atriðum og spádóms-
gáfu, »Kristologi«, sambandi milli trúar og þekkingar, og.
kenningunni um dauða og dánarheima«.
Sálarrannsóknirnar munu varpa nýju ljósi yfir þetta vanda-
mál. Þær munu réttlæta skoðun Krists og postulanna. Og
það er eigi lítilsvert fyrir kirkjuna. En afleiðingin hlýtur meðal
annars að verða sú, að farið verður að beita eitthvað svipuð-
um lækninga-aðferðum við ýmsa geðveika menn, sem þeim er
]esús og postularnir notuðu. Og eg held, að það verði til
óumræðilegrar blessunar. Góðs af þeirri aðferð munu og
margir drykkjumenn njóta. Oviðráðanleg ástríða þeirra á að
líkindum stundum upptök sín í sams konar haldi. Mesta
hættan af ofdrykkjunni er líklega sú, að hún veikir samband
sálar og líkama, og veitir óhreinum öndum (c: framliðnum
drykkjumönnum) færi á að ná valdi á drykkjumanninum.
Merkur prestur í New Vork, John Herman Randall að
nafni, hefir nýlega skrifað bók um sálarrannsóknirnar (»The