Eimreiðin - 01.10.1923, Blaðsíða 128
EIMREIÐIN
Til lesendanna.
Eimreiðin er nú að enda tuttugasta og níunda árið. Hún
ætti því að vera orðin nógu þroskuð til að lofa ekki öðru en
því, sem hún getur efnt. En svo mikið getur hún þó sagt nú
þegar, að hún vill verða hæli allra heilnæmra hugsana á sem
flestum sviðum og mun ekki úthýsa neinu fyrir þá sök eina, að
það brjóti í bág við ríkjandi skoðanir, siði eða venjur. Hún
mun láta sig varða sem flest af því, sem nútíðarmaðurinn
kemst ekki hjá að gera sér grein fyrir, eigi hann ekki í and-
legum skilningi að daga uppi, eins og nátttröllin, — í stuttu
máli, öll hin margvíslegu viðfangsefni nútímans, eftir því sem
efni leyfa. Hún vill þá og varðveita alt það í þjóðlífi voru,
sem hún telur gott, og hlúa að því. Þessvegna er henni kær-
kominn allur innlendur fróðleikur og ritgerðir um innlend efni
ekki síður en um útlend. Hún vill verða öllum til fróðleiks,
gagns og skemtunar. Ritstj.
Eimreiðin efnir til samkepni fyrir kaupendur sína um eftirfarandi
spurningu:
Hvað skortir íslenzku þjóðina mest?
Spurningin er þannig valin, að allir, ungir sem gamlir konur, sem karlar,
lærðir sem leikmenn, geta svaraö henni. Svörin, sem ekki mega vera lengri
en sem svarar hálfri blaðsíðu í Eimreiðinni, með meginmálsletri, eiga að
sendast ritstjóra Eimreiðarinnar, Pósthólf 322, Reykjavík, í sfðasta lagi
fyrir 1. mars næstk.. Senda skal svörin undir dulnefni, en fult nafn og
heimilisfang fylgi í lokuðu umslagi, verða þau umslög ekki opnuð fyr en
búið er að dæma um svörin. Um svörin verður dæitn af dómnefnd þriggja
þar til hæfra manna. Bestu svörin verða síðan birt í 2. eða 3. hefti Eim-
reiðarinnar næsta ár (undir eiginnafni eða dulnefni, vilji hlutaðeigandi
•ekki láta nafns síns getið). Þrenn verðlaun verða veitt, og eru þau þessi:
1. verðlaun: kr. 75,00
2. : — 50,00
3. : — 25,00
Samkepni þessi er aðeins fyrir kaupendur Eimreiðarinnar, gamla og nýja.
Nýir kaupendur að yfirstandandi árgangi geta fengið árganginn 1922
•ókeypis. Argangarnir 1921 og 1922 seljast annars fyrir hálfvirði (kr. 10,00).
Eldri árgangar fást einnig með niðursettu verði.
Þér, sem ekki eruð þegar kaupendur Eimreiðarinnar, fyllið út áskriftar-
seðilinn, sem er áfastur við þetta hefti, og látið hann í póstinn (umslags-
lausan). Það kostar ekkert, því burðargjaldið er greitt, og þér fáið ritið
sent yður um hæl.
Afgreiðsla Eimreiðarinnar verður fyrst um sinn á Nýlendugötu 24 B,
Pósthólf 322, Talsími 168, Rvík.