Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1923, Page 13

Eimreiðin - 01.10.1923, Page 13
eimreiðin VILHjALMUR MORRIS 269 alla sundurgerð og dekur og þótti nokkuð einrænn í ýmsu, en vinir hans unnu honum jafnt fyrir það og dáðust að mikil- mennsku hans og fjölbreyttu hæfileikum. En til dæmis að taka um framkomu hins mikla listamanns skal þess getið úr sögu hans á þeim árum, að eitt sinn er hann heimsótti vin sinn Burne jones sunnudagskvöld eitt, bannaði þjónustustúlkan hon- um að koma inn og urðu úr því stympingar. Kvaðst hún hafa hugsað, að gesturinn væri innbrotsþjófur. Hann bar þá sítt hár og óskorið, stóran og mjúkan flókahatt á höfði og krítar- pípu synkt og heilagt í munni. Kjólfatnað hataði hann og vildi nauðugur vera í boðum ef hann þurfti að vera fínn. Kunnu vinir hans um það ýmsar skringilegar sögur. Nú lenti lengi vel alt í iðnaðarfyrirmyndunum og þeim ó- tölulegu tilraunum og starfsemi, sem því fylgdi. Allan iðnað skyldi yngja upp og endurskapa; sérstaklega tók M. fyrir að mála helgar myndir og sögur í musterisglugga; þá fylgdi let- urgröftur og uppdrættir allskonar »stíla« og fyrirmynda; þá kom allskonar vefnaðarlist og hannyrða, útsaumur, ísaumur, flúrsaumur, krosssaumur og gobelinsaumur. Allskonar glit- og guðvefstjöld, ábreiður og reflar, sumpart og mest eftir gamalli innlendri ment, en sumt eftir annara þjóða sniði, jafnvel frá Austurlöndum. Þá bættist við litun og farfatilbúningur, er ótrú- legur vandi og kostnaður fylgdi. Alt varð M. fyrst að kunna sjálfur; vann hann til að rekja upp þráð fyrir þráð fornan og gleymdan listssaum eða vefnað þangað til hann lærði listina. Til hvers gaf maðurinn sig við öllum slíkum ósköpum og lagði í veð list sína, tíma, næði, heilsu og fé? Það gekk honum til, að hann vildi hefja þjóð sína og kippa upp á hærra stig sið- menningar, sóma og farsældar. Það var orðtak hans og fé- laga hans (samkvæmt kenningum þeirra Ruskins og Carlyles); *Erfiði með elju og dáð sé mark vort og mið — alt eins og fegurð og list«. Fyr en hvorttveggja er innrætt alþýðunni, sögðu þeir, hefst hún aldrei til hærri siðmenningar, né nær jafnvægi móti ríkismönnunum. Morris var ungur þegar hann ritaði þessi orð: »Hver maður er fæddur til að leysa ákveðið starf af hendi. Það er skylda hvers ungmennis að nema vel einhverja iðn og reka hana síðan með rögg og áhuga, hvort heldur hún er
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.