Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1923, Page 50

Eimreiðin - 01.10.1923, Page 50
306 EITT VANDAM. N. T. SKVR. EIMREIÐIN stöðukonan heyrði lýsing hennar á kerlingunni, hrópaði hún upp yfir sig: »Guð minn góður, þér lýsið andliti og vaxtarlagi konu, sem var móðursystir þessa ógæfusama barns, og lifði glæpsamlegu og óguðlegu líferni. Aðalmarkmið hennar var að ginna ungar stúlkur inn í pútnahús, sem hún var eigandi að, og þar dó hún í ölæðis-kasti, að eins viku áður en fyrsta kastið kom að þessu vesalings barni. Getur verið nokkurt samband milli þessa niðurlægingarástands barnsins og hinna andlegu áhrifa frá þessum illræmda ættingja þess?« Auðvitað varð frú Britten þeirrar skoðunar, er hún hafði fengið þessar upplýsingar, og réð hún forstöðukonunni að reyna »magnetiskar« lækningatilraunir við litlu stúlkuna. Þessu líkar eru ýmsar sögur, er dr. Crowell tilfærir í sinni merkilegu bók. Og stundum finst mér næstum grátlegt til þess að hugsa, er eg les sumt í þeirri bók, að slík þekking skuli hafa verið fengin 1874, og vér vitum ekkert um þetta enn. Stöku Iæknar og fræðimenn hafa kynt sér þessa hluti með samviskusamri rannsókn, en guðfræðingarnir elta enn efnishyggju-spekingana. Þriðja dæmið tek eg eftir frásögn eins af ensku dagblöð- unum (»Reynold’s News«). Lækningin, sem þar er um að ræða, vakti mikla athygli á Englandi í vetur og fjöldi blaða flutti sérstakar greinar um hana. Meginatriðin í frásögn blaðs- ins eru þessi: Mr. ]ames Peterbridge, kunnur tannlæknir í Paignton í Devonshire á Englandi, og kona hans eiga dóttur að nafni Leonie. Hún er nú 23 ára að aldri og hefir verið geðveik sjö ár og talin ólæknandi. Blaðið sendi mann gagngert til viðtals við þau hjónin, og frúin gaf skýrsluna um lækninguna. Leonie veiktist 15 ára gömul, þegar verið var að búa hana undir fermingu. Hún reyndi að svelta sig til bana, og það varð að setja fæðu ofan í hana með valdi. Líkaminn náði sér aftur, en sinnið ekki. Eftir nokkura mánuði versnaði henni og um fimm ár var hún í geðveikrahælunum í Exeter og Ex- mouth. »En þá fekk eg áhugá á spíritismanum«, mælti frú Peterbridge, »og tók að brjóta heilann um það, hvort dóttir mín myndi ekki vera dulnæmur miðill — hvort hér myndi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.