Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1923, Page 57

Eimreiðin - 01.10.1923, Page 57
iSIMREIÐIN RABINDRANATH TAGORE 313 Qift and Crossing«, »The Gardener* og »Fruit Gathering«, leikrit, svo sem »The Hing of the dark Chamber«, »The Post- office« og »Chitra«, langa rómana, svo sem »The Wreck« og »The Home and the World«, smásögur, svo sem »Hungry Stones« og »Mashi«, heimspekilegar ritgerðir um þjóðfélags- fræði (sjá Nationalism), um trúarbragða-heimspeki (sjá Sad- hana), bók um þróun persónuleikans (sjá Personality), og er sú bók fyrirlestrar, sem hann flutti í Ameríku 1917, o. s. frv.. Eitt uppáhalds-viðfangsefni Tagores er baráttan milli hins óbrotna og einfalda í mannlífinu og hins margbrotna og menningarsýkta lífs. Þessi barátta er t. d. viðfangsefni hans í rómaninum »The Wreck«, þar sem hið óbrotna sigrar. 1 smá- sögu þeirri, sem hér fer á eftir, gætir og hinnar sömu baráttu. Eins og gefur að skilja, hefir Tagore margt að athuga við ihina vestrænu menningu, sem hann hefir kynst við dvöl sína á Englandi og ferðum sínum um Evrópu og Ameríku. Ev- rópumenningin er ærið rotin í hans augum. Hann varar við vestræna dansinum um gullkálfinn og kapphlaupinu um gæði jþessa heims. Sönn þekking, segir Tagore, er ekki fólgin í því að undir- oka náttúruöflin og hrifsa gæðin úr skauti náttúrunnar með valdi, heldur er hún fólgin í því að geta snúið aftur til nátt- úrunnar, fundið sál hennar og lifað lífi hennar. »Sá einn lifir lífi sínu í sannleika, sem lifir lífi alls heimsins«, er setning, sem oft kemur fyrir hjá Tagore. 011 fyrirbrigði náttúrunnar eru að eins greinar á hinum mikla meiði lífsins, sem er einn og eilífur. Þessi eining er þungamiðjan í lífsskoðun Tagores, og þegar vér erum komin upp á þann sjónarhól, að vér get- um greint hið eilífa takmark í öllum hinum margbreytilegu fyrirbrigðum lífsins og sögunnar, þá höfum vér um leið skilið hlutverk vort og getum farið að starfa að því fyrir alvöru, enda eykst þá að sama skapi samræmið í öllu lífi voru. Allir harmleikir sögunnar stafa af því, að einhver einn hefir tekið sig út úr heildinni og reynt að fara sínu fram, þvert ofan í lögmál einingarinnar. En enginn er svo máttugur konungur, að hann geti gert uppreisn móti hinum eilífa mætti einingar- innar og haldið mætti sínum eigi að síður. Margir hafa reynt það, en öllum mistekist. Neró og Napóleon ætluðu sjálfir að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.