Eimreiðin - 01.10.1923, Qupperneq 127
EIMREIÐIN
RITSJA
383
í þessu sambandi er vert að minnast þess, að það var Sig. Kristófer
Pétursson, sem á trúmálafundum Stúdentafélagsins hér í Reykjavík vetur-
inn 1921—’22 hvatti til samvinnu milli hinna ýmsu flokka, sem þar leiddu
saman hesta sína, þó að sú hvatning fengi þá lítinn stuðning. Nú hvefur
hann aftur til samvinnu, í þessu kveri. Það er fróðlegt að vifa, hvort
kirkjuvöld landsins ætla að sinna því að nokkru. Því ekki ætti mönnum
að blandast hugur um, að hægt er fyrir alla flokkana að starfa saman
að mannúðarmálum, hvað sem skoðunum líður, ef viljinn er góður. Og
er jafnvel ekki svo langt komið, að menn séu orðnir sammála um ýms
mikilsverð trúaratriði, svo óþarfi sé um þau að deila lengur? Heldur
t. d. nokkur eilífri útskúfun fram lengur hér á landi í alvöru? Eg held
varla. Það er því alls ekki fyrir að synja, að samvinna allra flokka gæti
komið til greina um fleiri mál en bein mannúðarmál. Er það t. d. ekki
vinnandi verk fyrir kirkjustjórn landsins að koma út nýju barnalærdóms-
kveri í stað hins úrelta „Helga kvers“, sem allir eru orðnir óánægðir
með, — og jafnvel nýrri sálmabók líka? Og væri ekki einmitt hægt fyrir
kirkjustjórnina að koma þessu í framkvæmd með samvinnu fulltrúa frá
öllum flokkum? Þetta væri ekki eingöngu mannúðarmál, heldur kæmist
með þessu einnig á samvinna um sjálf kenningakerfin, en að því yrði
kirkjunni fyrst og fremst styrkur. Til þess að semja nýtt barnalærdóms-
kver mætti t. d. setja nefnd, sem í sætu einn gamalguðfræðingur, einn
nýguðfræðingur, einn fylgismaður spiritistisku hreyfingarinnar og einn
guðspekissinni, auk biskups landsins.
Þó að höfundurinn sé víða þungorður í garð kirkjunnar, er þó fjarri
því, að hann rýri í nokkru hlutverk hennar, heldur þvert á móti. Eg get
ekki stilt rnig um að tilfæra hér það, sem höfundurinn segir á einum
stað um trúna (bls. 53);
„Trúin veitir mönnum margvíslega hjálp. An hennar mundi mannkynið
ekki hafa eignast það, sem því er og verður dýrmætast. Engin heimspeki,
engar listir né vísindi væru til, eða í einu orði sagt: engin siðmenning,
ef það hefði ekki haft einhverja trú. Hver sem vill, getur rakið sögu
heimspeki, lista og vísinda, og hann mun þá verða að ganga að lokum
inn í launhelgar trúar".
Þeir, sem vilja fylgjast með t andlegum málum hér á Iandi, og þeir
eru margir nú á tímum, þurfa að eignast rit þetta og lesa það með
athygli. Sv. S.