Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1920, Síða 62
54
engin ranglætisbók verður rituð um hann,
og enginn dómsdagur finst gegn honum.
6 Og hinir sjö heilögu fóru með mig og seltu mig á jörð-
ina fyrir framan húsdyr mínar og sögðu við mig: Skýrðu
syni þínum, Metúsala, frá öllu og sýndu öllum börnum
þínum, að ekkert hold er rjettlált fyrir augliti drottins, því
að hann er skapari þeirra«.
En af ummælum opinberunarritanna um stjórn guðs, má
benda á þessi ummæli 2. Enokshókar:
»Því að jeg skapaði öll öíl og enginn er sá, sem staðist
fái gegn mjer, eða gerist mjer ekki undirgefinn. Þvi að allir
gerast þegnar rikis míns og vinna eingöngu undir stjórn
minnk.1)
»0g nú, hörnin min, skuluð þjer heyra talað um föður
jarðarinnar, hversu óttalegt og ægilegt það er að koma fram
fyrir ásjónu stjórnanda jarðarinnar, en hversu er það enn
hræðilegra og ægilegra að koma fram fyrir ásjónu stjórn-
anda himins, sem ræður yfir lifandi og dauðu og herskör-
um himnanna. Hver fær staðist þá endalausu kvöl?«2)
Og ummælin i 2. Barúkshók:
»31 cÞú, sem rikir með mikilli umhyggju yfir herskör-
unurn, sem standa frammi fyrir þjer, og einnig yfir hinum
ótölulega grúa af helgum verum, sem þú skapaðir frá upp-
hafi úr loga og eldi, sem standa kringum hásæli þitt og þú
rikir yfir þeim með ávitum. 7 Þeir heyra þjer einum til, svo
að þú skulir gera þegar í stað það, sem þú vilt, 8 Þú lætur
fjölda regndropa falla til jarðar, og þú einn veist endalok
tímanna áður en þeir koma. 9 Gef gaum að bænum mínum.
Þvi að þú einn ert fær um að halda við öllum þeim, sem
til eru, þeim sem horfnir eru, og þeim, sem eiga að verða,
þeim sem syndga, og þeim, sem eru rjettlátir«.
Það varð verkefni guðrækninnar að hrúa djúpið milli
guðs og heimsins. Þar komu æfagamlar og í þjóðtrúnni rót-
festar skoðanir um engla og anda til hjálpar. Hugsuðu Gyð-
ingar sjer þessar æðri verur milliliði milli guðs og heims-
ins. Er mikið um englana í opinherunarritunum, en ítarleg-
ast er þeim og starfsemi þeirra lýst í Enokshókunum.
1) 33, 7.
2) 39, 8.