Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1920, Blaðsíða 67
59
Mjög gerðu Gyðingar sjer mismunandi hugmyndir um,
hvað væri í hverjum himnanna. Koma þar margar einkenni-
legar skoðanir fram og má lesa þær i Erfðaskrá Levi, i 2.
Enoksbók og Opinberunarbók Barúks grísku. Eru i öllum
þessum ritum talsvert ítarlegar lýsingar á þvi, hvað í hverj-
um himnanna sje og sjest af þeim lýsingum, að altaf hafa
hugmyndir þessar verið að breytast.
Lýsing himnanna sjö i Erfðaskrá Levi er á þessa leið,
samkvæmt þeim textanum, sem írumlegastur er talinn og
bestur:
»£S ... r’ Og jeg sá að himnarnir voru opnaðir og engill
guðs sagði við mig: Levi, kom þú inn.
7 Og jeg kom inn úr fi/rsía himniimm og þar sá jeg hanga
haf mikið.
8 Og enn fremur sá jeg annan himin miklu bjartari og
ágætari, því að i honum var óþrjótandi ljós.
9 Og jeg sagði við engilinn: Hví er þetta svo? Og engillinn
sagði við mig: Undrast ekki þelta, því að þú skalt sjá annan
himin miklu ágætari og óviðjafnanlegan.
10 Og þegar þú hefir stigið þangað upp, skalt þú standa
nálægt drotni,
og vera þjónn hans.
Og þú átt að birta mönnum leyndardóma hans,
og kunngera um hann, sem leysa mun ísrael.
11 Og með þjer og Júda mun drottinn birtast meðal manna
og frelsa sjerhvern kjmþátt manna.
12 Af drottins hluta skalt þú lifa.
Hann skal vera þjer akur og víngarður,
og ávöxtur, gull og silfur.
3 1 Fyrir því skalt þú heyra um himnana, sem þjer hafa
verið sýndir. Hinn neðsti er dimmur fyrir sjónum þínum
fyrir þær sakir að hann horfir niður á alt ranglæti mann-
anna.
2 Og þar er eldur, snjór og ís hafður tilbúinn til dóms-
dags til rjettlætisdóms guðs. Því að þar eru allir refsiand-
arnir, sem eiga að hegna mönnunum til endurgjalds.
3 Og i öðrum er sægur hersveita, sem eru ákvarðaðar lil
dómsdags til þess að koma hefndum fram á öndum svik-
anna og öndum Beliars.
4 Og í hinum allra liœsta dvelur dýrðin mikla, sem er
hátt yfir öllum heilagleika.