Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1920, Qupperneq 69
61
þeir settu mig á fyrsta himininn 3 og sýndu mjer afarstórt
haf, stærra en jarðneska liafið.
4 1 Þeir komu með öldungana fram fyrir mig og einn-
ig þá, sem stjórna brautum stjarnanna. Þeir sýndu mjer tvö
hundruð engla, sem stjórna sljörnunum og þjónustu þeirra í
þágu himnanna, 3 og veifa vængjunum og snúast umhverfis
alla þá, sem sigla.
Q 1 Þá leit jeg niður og sá forðabúr snjávarins1) og engl-
ana, sem gæta þessara hræðilegu forðabúra sinna, 2 og
forðabúr skýjanna, sem þeir koma út úr og fara inn i.
6 1 Þeir sýndu mjer forðabúr daggarinnar, sem var lík
og viðarolia, og leit út eins og öll blóm jarðarinnar. Enn
fremur marga engla, sem gættu forðabúra þessara hluta, og
hvernig þeim er lokað og þau eru opnuð.
7' 1 Og mennirnir tóku mig og leiddu mig upp i annan
himin og sýndu mjer myrkur, sem var meira en jarðneskt
myrkur. Og þar sá jeg að haldinn var vörður um fanga,
sem hjengu og biðu hins mikla og ógurlega dóms. 2 Og þess-
ir englar voru dimmir á svip, það var meira en jarðnesk
dimma, og þeir grjetu óaflátanlega öllum stundum. Og jeg
sagði við mennina, sem með mjer voru: 3 Hvers vegna eru
þeir kvaldir óallátanlega? Þeir svöruðu mjer: Þessir englar
viltust frá guði. Þeir hlýddu ekki boðum guðs, heldur ráðg-
uðust um við sinn eigin vilja, og sneru burt með höfðingja
sínum, sem einnig er bundinn i fimta himni. 4 Jeg kendi
mjög í brjósti um þá, og þeir heilsuðu mjer og sögðu við
mig: Guðsmaður, bið þú fyrir oss hjá drotni. 5 Og jeg svar-
aði og sagði við þá: Hver er jeg, dauðlegur maður, að jeg
skuli biðja fyrir englum? Hver veit, hvert jeg fer eða hvað
muni henda mig? Eða hver mun biðja fyrir mjer?
8 1 Og mennirnir tóku mig þaðan og leiddu mig upp
til þriðja himins og settu mig þar. Og jeg leit niður og sá
jurtagróður þessara staða og hefir aldrei þekst slíkur að gæð-
um. 2 Og jeg sá öll trjen með ilmandi blómum og leit ilm-
ríka ávexti þeirra, og alla fæðuna sem þau báru, skjóta loft-
bólum með ilmandi gufum. 3 Og í miðju trjánna stóð lifsins
trje á þeim stað, þar sem drottinn hvílist, þegar hann stígur
upp í Paradís, og er trjeð óumræðilega gott og ilmandi og
prýðilegra hverjum hlut, sem til er. 4 Alt er það á að lita
sem gull, fagurrautt og eldslitað. Það þekur alt og á því vaxa
1) Sbr. Job. 38, 22.