Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1920, Page 72
64
rúms betur. Og jeg mældi þau nákvæmlega og sá að stærð-
in var þetta, þar sem sólin fer í gegn til vesturs, og er gerð
jöfn, 4 og rís alla mánuðina og snýr aftur frá hliðunum sex
eftir þvi, sem hver árstíð kemur á eftir annari. B Þannig taka
árstíðirnar fjórar yfir heilt ár.1)
14 1 Og aftur leiddu mennirnir mig að vesturhlutanum
og sýndu mjer sex stór hlið opin samsvarandi austurhlið-
unum. IDau eru þar á móts við, sem sólin sest samkvæmt
fjölda daganna þrjú hundruð sextiu og íimm og einn fjórði.
2 Þannig fer hún aftur niður að vesturhliðunum og dregur
burt ljós sitt, ofurmagn birtu sinnar, undir jörðunni, með
því að kóróna skins hennar er á himnum hjá drotni og er
gætt af fjögur hundruð englum 3 meðan sólin fer í kring á
hjóli undir jörðunni og staðnæmist sjö langar stundir á
nóttunni og fer hálfa braut sína undir jörðunni. Og þegar
hún nálgast austurhliðin aftur um áttundu stundu nætur,
tekur hún ljós sitt og kórónu skinsins og sólin blossar upp
meir en nokkur eldur.
15 1 Þá tóku verurnar i sólunni, sem nefndar eru fön-
ixar og kalkýdrar, að syngja, og þær sungu eftir skipun
droltins. Þess vegna syngja fuglarnir um sólarupprás og lofa
Jjósgjafann. . . .2) 3 Og þeir sýndu mjer reikning sólargangs-
ins........4 Sólaröldin varir í 28 ár og byrjar þá aftur frá
byrjun.
16 1 Mennirnir sýndu mjer aðra farbraut, braut tunglsins,
tólf stór hlið, krýnd frá vestri til austurs, og tunglið gengur
út og inn um þau á ákveðnum tímum.... 5 En tungl-
árið er þrjú hundruð fimmtíu og fjórir dagar og vantar þvi
tólf daga á hring sólarinnar og eru það því viðbótardagar
tunglsins á öllu árinu. 0 Fjórðungi dags er slept í þrjú ár en
fjórða árið fyllir það nákvæmlega...........
ÍT' 1 í miðjum himnunum sá jeg vopnaða hermenn, sem
þjónuðu drotni, með bumbur og hljóðfæri, með óaflátanlegri
raust, inndælli raust, með inndælli og óþrotlegri raust og marg-
víslegum söng, sem eigi er auðið að lýsa, og sem gerir hvern
huga forviða; svo dásamlegur og furðulegur er söngur þess-
ara engla, og jeg varð gagntekinn af unaði við að hlusta á
hann.
18 1 Mennirnir tóku mig og fóru með mig áfram til
1) í v. 2. 15. er textinn eitthvað ruglaður. 3. v.vantar.
2) Punktarnir tákna það, að slept er úr í þýðingunni.