Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1920, Page 77
69
voru skapaðar í þeim tilgangi, að andar sálna hinna dánu
skyldu safnast þar saman, já, að allar sálir mannanna barna
skyldu safnast saman hjer. 4 Og þessir staðir voru gerðir til
þess að geyma þær til dómsdags, til þess ákveðna tima,
þegar dómurinn mikli gengur yfir þær.
6 Jeg sá anda mannanna barna, sem dáin voru, og rödd
þeirra steig upp til himna kvartandi. 6 Þá spurði jeg Rafael,
sem með mjer var, og sagði við hann: Hvaða andi er þetta,
sem sendir upp kvartandi raust?
7 Og hann svaraði mjer og sagði: Þetta er andinn, sem
yfirgaf Abel, þegar Kain bróðir hans drap hann, og hrópar
gegn honum þar til sæði hans er eytt af yfirborði jarðar og
útrýmt úr sæði mannanna.
8 Þá spurði jeg um allar dældirnar: Hvers vegna er ein
skilin frá annari?
8 Og hann svaraði og sagði við mig: Þær voru gerðar
þrjár til þess að andar dáinna gætu verið aðgreindir. Önd-
um hinna rjeltlátu var gerður sjerstakur staður og er þar
tær uppspreíta vatns. 10 Og staður var gerður handa synd-
urum, sem deyja og eru grafnir í jörðu, og hafa ekki þolað
dóm meðan þeir lifðu. 11 Hjer verða andar þeirra settir sjer-
stakir í mikla kvöl til hins mikla dags, er dómur, refsing
og pínsl kemur yfir þá, sem lastmæla að eilífu, og hegning
kemur yfir anda þeirra. Þar mun hann binda þá að eilífu.
12 Og staður heíir verið gerður handa öndum þeirra, sem
kvarta og skýra írá eyðingu sinni, er þeir voru drepnir á
dögum syndaranna. 13 Slíkur staður var gerður handa önd-
um manna, sem ekki voru rjettlátir, heldur syndarar, sem
voru fullkomnir í yfirtroðslum, og þeir skulu verða fjelagar
yfirtroðslumanna. En andar þeirra skulu ekki verða deyddir
á dómsdegi, nje heldur skulu þeir þaðan i frá upp reistir
verða.
u Þá lofaði jeg drottin dýrðarinnar og sagði: Lofaður sje
drottinn minn, drottinn rjettlætisins, sem rikir um aldir«.
En jafnframt þessum hugmyndum komst sú skoðun einnig
inn hjá Gyðingum, að dvalarstaður dáinna væri á himnum.
Verður þá ýmist, að menn hugsa sjer á himnum dvalarstað
bæði góðra og vondra, eða bústað rjettlátra á himnum og
óguðlegra í undirheimum. Hafa hugmyndirnar um upprisu
og dómsdag eðlilega haft mikil áhrif á þessar skoðanir. Sú
skoðunin, að bæði góðir menn og vondir fái bústað á himn-
um, kemur fyrir í 2. Enoksbók, eins og hjer að framan er