Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1920, Page 79
71
kvæmt henni hefir hann látið þeim hlotnast hlutskifti þeirra.
5 Þá lofaði jeg drottin dýrðarinnar og vegsamaði dýrð hans
hástöfumcc.
En í 54. kap. sömu bókar er lýsingin svofeld:
»54 1 Og jeg leit upp og sneri mjer til annars hluta jarð-
arinnar, og jeg sá þar djúpan dal með brennandi eldi. 2 Og
þeir komu með konungana og stórmennin og tóku að kasta
þeim niður i þennan djúpa dal. 3 Og augu mín sáu, hvernig
þeir hjuggu til þessi (kvala)tæki á þá, járnhlekki ómælan-
lega þunga. 4 Og jeg spurði engil friðarins, sem með mjer
fór, og sagði: Handa hverjum eru þessir hlekkir gerðir?
6 Og hann sagði við mig: Þeir eru fyrirbúnir hersveitum
Asasels, svo að þeir verði teknir og kastað i djúp algerðrar
fyrirdæmingar og gin þeirra skulu grjóti byrgð að boði
drottins andanna.
6 Og Míkael, Gabríel, Rafael og Fanúel skulu taka þá á
þeim mikla degi og kasta þeim á þeim degi i eldsofn hrenn-
andi, svo að drottinn andanna geti hegnt þeim fyrir rang-
læti þeirra, er þeir gerðust þegnar Satans og afvegaleiddu
þá, sem á jörðunni búa«.
§ 7. Hið illa í lieiiuinum.
1. Pessi öld.
1 opinberunarritunum koma fram hugmyndirnar um ald-
irnar tvær, sem menn hugsuðu sjer að heimsrásinni væri
skift í. Yar önnur þeirra þessi öld eða þessi heimur, þessi
veröld (6 alœv óvzog), þ. e. liðni timinn og yfirstandandi tím-
inn, en hin var komandi öldin (6 aioóv /uéslœv), komandi
heimur sælu og fullkomnunar. Segir 4. Esrahók, að guð
hafi skapað aldirnar tvær og hvers vegna hann hafi gert það:
»7 60 Af þessum sökum skapaði hinn hæsti ekki aðeins
eina öld, heldur tvær. 61 Og með því að þú hefir sagt, að
hinir rjettlátu sjeu ekki margir, heldur fáir, en hinir óguð-
legu fjölmargir, þá heyr nú um þetta: 62 Gerum ráð fyrir að
þú eigir dýra steina, en mjög fáa að tölu, vilt þú þá setja
hjá þeim blý og leir?
53 Og jeg sagði: Herra, hvernig gæti það orðið?
64 Og hann sagði við mig:
Spyr þú nú jörðina og hún mun segja þjer.
Talaðu við hana og hún mun skýra það fyrir þjer.