Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1920, Side 125
117
Hann mun ganga með sonum mannanna í hógværð og
rjeltlæti.
Og engin sjrnd mun finnast í honum.
a Og himnarnir munu opnast fyrir honum,
til þess að úthella andanum, blessun hins heilaga föður.
3 Og hann mun úthella yfir yður anda náðarinnar,
og þjer skuluð vera sannir synir hans,
og framganga i boðum hans frá upphafi til enda.
[4 Þessi er kvistur guðs hins hæsta,
og þetta er lindin, sem öllu gefur líí].
6 Þá mun ijóma af veldissprota konungsrikis míns;
og af rót yðar mun risa upp stofn.
6 Og frá honum mun vaxa rjettlætis-sproti handa heiðingjunum,
til þess að dæma og frelsa alla þá, sem ákalla drottin«.
Erfðaskrá Dans:
»£5 10 Og frelsun drottins mun yður upp rísa af ætt Levi.
Hann skal heyja strið við Belíar,
og koma fram ævarandi hefnd yfir óvinum vorum.
11 Og hann mun taka fanga af Belíar,
og snúa hjörtum óhlýðinna til drottins,
'og gefa þeim, sem ákalla hann, eilífan frið«.
Erfðaskrá Jósefs:
»19 5 Og eflir þetta sá jeg, og sjá! Tólf naut sugu eina kú.
Úr henni rann haf af mjólk og úr þvi drukku tólf hjarðir
og óteljandi fjöldi fjenaðar.
6 Og horn fjórða nautsins uxu til himins og urðu sem
varnarmúr fyrir hjarðirnar. Og milli hornanna tveggja óx
upp annað horn, 7 og jeg sá nautkálf, sem fór tólf sinnum í
kring um þá og varð öllum naulum til hjálpar.
8 Og milli hornanna sá jeg mey, og af henni fæddist lamb.
Við hægri hlið lambsins var eitthvað, sem líktist ljóni. Og
öll dýr og skriðkvikindi rjeðust á lambið, en lambið sigrað-
ist á þeim og eyddi þeim.1) 9 Og nautin glöddust yfir lambinu
og kýrin fagnaði með þeim«.
3. Heimsdómarinn og endurlausnarinn.
»ApokaIyptisku« skoðunina á Messíasi þekkjum vjer best af
Messiasarkallanum i 1. Enoksbók, frá 2. Barúksbók og 4. Esrabók.
I 1. Enoksbók eru 4 heiti á framtíðarkonunginum, sem
talið er að komi þar fyrir í fyrsta skifti í bókmentum Gyð-
1) Textinn í 8. versinu er vafasamur.