Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1920, Page 130
Hjá honum skal vera bústaður þeirra og arfleifð,
og aldrei skulu þeir skildir verða frá honum um alla eilífð.
17 Þá munu verða eilífðardagar með mannssyninum,
og hinir rjettlátu munu hafa frið og beinar brautir
í nalni drottins andanna að eilífu«.
í 2. Barúksbók er talað um að Messías komi fram og fari
aftur til dýrðar sinnar. Af ummælunum verður ekki með
vissu sjeð, hvaðan hann muni koma, hvort heldur frá ein-
hverjum óþektum stað á jörðunni eða frá himnum. Þó
bendir ýmislegt til hins siðara og kemur þá fortilveruhug-
myndin einnig hjer fram, eins og í 1. Enoksbók. En helstu
Messíasarummælin í 2. Barúksbók eru þessi:
»30 1 Og svo mun bera við eftir þetta, þegar tími nálægðar
Messiasar er fullnaður, að hann fer aftur i dýrð sína. . . .
39 7 Og svo mun bera við, þegar nálgast tími endaloka
þess (þ. e. 4. ríkisins), og það á að farast, að þá mun birt-
ast höfðingjadómur Messíasar míns, sem er likur lind og
líkur vinviði, og þegar hann birtist, mun hann uppræta
fjölda herskara þess. 8 Og svo jeg minnist á það, sem þú
lieflr sjeð, sedrusviðinn háa, sem eftir varð af skóginum, og
það að vínviðurinn talaði við hann þeim orðum, sem þú
heyrðir, þá er þetta um það að segja:
40 1 Hinn síðasti stjórnandi þess tíma mun lifandi eftir
verða, þegar allir hinir mannmörgu herskarar hans hafa
fallið fyrir sverði. Og hann mun bundinn verða, og þeir
munu fara með hann upp á Zíon-fjall, og Messías minn
mun sanna á hann alt guðleysi hans og safna saman og
setja fyrir framan hann öll verk hersveita hans. 2 Og siðar
mun hann taka hann af lífi, og varðveita eftirstöðvar þjóðar
minnar, sem flnst á þeim stað, er jeg hefi kjörið. 3 Og höfð-
ingjadómur hans mun vara að eilífu, þar til heimur fallvalt-
leikans er á enda, og þar til fullnast áðurnefndir tímar.
1 Þetta er sýn þín, og þetta er merking hennar.
73 1 Nú skaltu heyra um eldinguna björtu, sem koma á
við endalokin á eftir svörtu vötnunum. Þetta er um það að
segja: 2 Eftir að táknin hafa komið, sem þjer var áður frá
sagt, þegar þjóðirnar gerast óstýrilátar og tími Messíasar
míns er kominn, þá mun hann kalla (saman) allar þjóðir,
og sumum mun hann hlífa, en deyða aðra. 3 Því munu þessir
hlutir koma yflr þær þjóðir, sem hann á að hlífa. 4 Sjer-
hverri þjóð, sem ekki þekkir ísrael og ekki heflr fótum-
troðið sæði Jakobs, skal hlíft verða. 6 Og það er vegna þess, að