Búnaðarrit - 01.01.1911, Page 52
48
BÚNAÐARRIT.
Munurinn á sauðataði og öðrum áburði skýrist enn
betur, þegar litið er á einkenni og áhrif þessara þriggja
áburðartegunda.
Kúamykjan er vatnsmikil, og þar af leiðandi kaldur
áburður. í henni er lítíl gerð; hún er torleyst og
verkar seint. Að öðru leyti er hún mismunandi efna-
rík, eftir því hvernig gripirnir, sem mykjan er undan,
hafa verið fóðraðir.
Hrossatað er léttur áburður, laus í sér, hitamikill
og verkar fljótt. Það tekur því skjótum efnabreytingum,
og áhrif þess eru skammvinn. En gæði þess, að því er
efna-innihaldið snertir, eru mjög mismunandi, eíns og
áður er 'tekið fram. Tað undan eldishestum er góður
áburður. Hins vegar er taðið undan útigangshrossum
að vetrinum mjög lélegt.
Sauðatað er efnisríkt, vatnslítið til þess að gera, og
því mjög góður áburður. Það er hitaveitandi og gerð
mikil í því. Áhrif þess eru jafnan augljós á allan gróður.
Þar sem það er borið á sprettur vel.
Niðurstaðan verður þessi, að sauðataðið er lang-
bezti skepnuáburðurínn, sem til felst á þessu landi.
Þegar það er ennfremur athugað, að söfnun og
geymsla sauðataðsins er að jaínaði betri og fullkomn-
ari en gerist um annan áburð, þá verður það því
fremur auðsætt, að það er betra til áburðar en nokkur
annar skepnu-áburður. — En þennan góða áburð nota
menn alment undir pottinn, eða brenna honum, í stað
þess að bera hann á.
Það er í meira lagi misráðið.
III. Verðmæti áburðarins.
Þegar ræða er um verðmæti áburðarins, þá verður
fyrst að gera áætlun um áburðarmagnið undan hverri
skepnutegund, og leggja það til grundvallar við útreikn-
inginn á verðgildi hans.
Það er töluvert mismunandi, hvað áburðurinn er