Búnaðarrit - 01.01.1911, Page 69
BÚNAÐARRIT.
65
verður með öðrum orðum betri með þessu móti og
notasælli.
Hvað áburðinn undan sauðfénu snertir, þá er það
gamall, góður siður hér á landi, að iáta hann safnast
fyrir i húsunum yfir veturinn. Ef húsunum er haldið
hæfllega þurrum, geymast áburðarefnin í taðinu, án þess
neitt verulegt fari til ónýtis af þeim. Yerður því eigi
annað sagt, en að þessi meðferð áburðarins sé einhver
sú bezta og fullkomnasta, er eigi sér stað.
Hins vegar þykir þó ekki hlýða, margra hluta vegna,
að ráða til að geyma áburðinn í fjósum á sama hátt.
Það er svo miklum annmörkum bundið, að siíkt er
eigi takandi í mál.
Öðru máli er að gegna með áhurðinn undan hross-
unum. Ef því verður eigi komið við, að bera hann
saman við fjósamykjuna í áburðarhúsið, ætti að sjálf-
sögðu að láta hann safnast fyrir i hesthúsunum, helzt
yfir allan veturinn, eðaað minsta kosti svo lengi sem hús-
rúmið leyflr. En þá er nauðsynlegt að bera undir hest-
ana saman við áburðinn, til þess að halda gólfinu þurru.
Mun þá eigi veita af 1—3 kg. af góðum undirburði fyrir
hvern hest, sem hýstur er í hesthúsinu, eftir því hvað
eða hvernig þeim er gefið.
VI. Áhurðarhús og forir.
Niðurstaðan, þegar um geymslu áburðarins er að
ræða, hefir orðið sú, að bezt sé í raun og veru, eftir
því sem til hagar hér, að geyma hann í áburðarhúsi
og áburðarlöginn í for.
Er þá næst að athuga, hvernig áburðarhúsin skulu
gerð, og hvað þau þurfa að vera stór.
Bezt er að geta bygt áburðarhúsið þannig, að auð-
velt sé að koma áburðinum úr fjósinu í það. Þyrfti
það helzt að standa mjög nálægt fjósinu eða í beinu
sambandi við það.
Sumir álíta hagfeldast, að geyma áburðinn undir