Búnaðarrit - 01.01.1911, Page 76
72
BÚNAÐARRIT.
Rúmmál áburðarhúsa, er gerð hafa verið frá því
um aldamótin, eru þá samlagt 12325 ten.m. Það er
með öðrum orðum rúm fyrir áburð undan 1233 naut-
gripum. Einnig má orða það þannig, að það samsvarar
nálægt 150 áburðarhúsum handa meðal-heimilum í sveit.
Sennilega eru nú áburðarhúsin fleiri en þetta, en mörg
hins vegar minni en hór var gert ráð fyrir.
Flest eru áburðarhúsin í Árnessýslu, Borgarfirði,
Dalasýslu og Strandasýslu. I flestum öðrum hóruðum
er lítið um þau.
Lítið eða ekkert er ástandið betra, þegar um sal-
ernin er að ræða. Kostnaðurinn við að koma þeim
upp er þó ótilfinnanlegur. Hins vegar stór-mikið gagn
að eiga þau og nota. Ætla mætti því, að eigi
þyrfti langan umhugsunartíma til þess, að ráðast í að
koma þeim upp.
Til skamms tíma hafa selerni ekki verið nema í
mesta lagi á 1—3 bæjum í hverri sveit, og í sumum
sveitum hafa þau alls eigi verið til. En dálítið hefir
þeim fjölgað síðustu árin; því verður eigi neitað. Þar sem
bezt lætur, eru þau komin á þriðja og fjórða hvern bæ.
Auk þægindanna og aukins þrifnaðar, er salernin
hafa í för með sér, má auka með þeim áburðinn.
Mannasaur er fyrirtaks áburður, ef róttilega er með hann
farið. Hann er talinn hafa í sér fólgið:
Af köfnunarefni.....................1,14%
— fósfórsýru.......................0,37—
— kalí.............................0,27—
Úr fullorðnum manni eru saurindin yfir árið nálægt
500 kg. alls eða */2 teningsmeter. í árs-saurnum eru
þá hér um bil:
Af köfnunarefni.......................5,17 kg.
— fósfórsýru........................1,20 —
— kalí..............................1,00 —
Hér er gert ráð fyrir því, að % hluti þvagsins fari for-
görðum af skiijanlegum ástæðum.