Búnaðarrit - 01.01.1911, Page 78
74
BÚNAÐARRIT.
jafnan að verða takmörkuð vegna áburðarskorts.
Aðal-ástæðan fyrir þessu er talin vera sú, að áburður-
inn undan kúnni sé ónógur til þess, að framleiða nægi-
legt fóður handa henni.
Það heflr í sjálfu sér enga þýðingu, að ræða þessu
sinni um skort á áburði í framtíðinni. Vér sem
nú lifum getum ekkert um það sagt, hvernig hér verð-
ur umhorfs, hvað áburðinn snertir og fleira, eftir svo
sem 50—100 ár. En eins og nú horflr, er mjög á-
stæðulítið að vantreysta framförum í jarðrækt vegna á-
burðarieysis. Þegar innlenda áburðinn þrýtur sökum
aukinnar jarðræktar, verða ef til vill komnar hér á fót
verksmiðjur, er vinna áburð úr loftinu eða jafnvel ein-
hverju öðru. Vér getum því í þessu efni beðið rólegir
og séð hverju fram vindur. Hitt er víst, að nú sem
stendur höfum vér nógan áburð, og með aukinni jarð-
rækt og fjölgun búfénaðar eykst hann stöðugt.
En hvað það snertir, að kýrin gefl ekki nægan á-
burð til þess að rækta fóðrið sitt, þá er mér eigi kunn-
ugt um, að það mál hafl verið rannsakað til hlítar.
Torfl í Ólafsdal og fleiri hafa að vísu áætlað, að áburð-
urinn undan kúnni mundi geta framleitt 24 hesta af töðu.
Með tilliti til efnasamsetnings áburðarins ætti hann að
gera meira, ef alt er í góðu lagi. Sé áburðurinn vel
hirtur, blandaður mold eða mómylsnu, og áburðarlegin-
um safnað í for, þá ætti mykjan undan kúnni að duga
á J/2 hektar lands. Ef túnið er i góðri rækt, má ráð-
gera að með þessum áburði fengjust 60—66 hestar af
hverjum hektar eða rúmir 20 hestar af dagsláttunni.
Gerir þá áburðurinn undan kúnni 30—33 hesta af töðu.
En jafnvel þótt svo væri, að mykjan undan kúnni
nægði eigi til þess, að rækta fóðrið hennar, þá er það
ekki eins dæmi. Sama mun einnig eíga sér stað ann-
arsstaðar um Norðurlönd, að minsta kosti þar, sem
kýrnar eru ekki hafðar inni og gefið árið um kring.