Búnaðarrit - 01.01.1911, Page 80
Áveita á Miklavatnsmýri.
Áætlun eftir Karl Thalbitzer.
Eftir tilmælum Búnaðarfélags íslands hefir deildin1
búið til áætlun þá, er hér íer á eftir, um áveitu á
Miklavatnsmýri. Undirstaðan undir áætluninni er kort,
herstjórnarráðsins með mælikvarðanum 1 : 50000 og
undirbúnings-rannsóknir þær, er gerðarvoru 1906 og 1910.
Gert er ráð fyrir, að vatnið til áveitunnar sé tekið
úr Þjórsá, þar sem merkið A er sett á kortinu2, nál. 700 m
(stikum) fyrir sunnan bæinn Mjósund, og er við áæti-
unargerðina bygt á skýrslum þeim, er eigandi þeirrar
jarðar gaf um vatnshæðina í Hvítá um það leyti árs,
sem búist er við að veitt sé á. Staur var rekinn niður
í Þjórsá við bakkann 21. júlí þ. á. þannig, að gert er
ráð fyrir, að altaf nái vatnið í ánni um áveit.utímann
jafn-hátt staurnum. Hæð staursendans, sem upp snýr,
yfir sjávarmái var mæld og reyndist hún vera 7.70 m,
en vatnsborðið í Þjórsá var þann dag 6.77 m. yfir sjávar-
mál. Hallinn var mældur frá mælistöðum í tveim af
iínum þeim, er merktar voru og mældar 1906, til staurs-
ins í Þjórsá.
Reynt hefir verið að koma áveituskurðunum svo
fyrir, að vatniau sé veitt að landamerkjum hverrar jarðar.
Er það gert með því, að láta skurðina, þar sem því
verður við komið, liggja í mörkum miili jarða. Af
1. „Kulturteknisk“ deild Heiðafélagsins danska. Útg.
2. Því miður verður þvi ekki við komið, að Búnaðarritið
flytji kort það, sem til er vísað. ’U t g.