Búnaðarrit - 01.01.1911, Page 91
BÚNAÐARRIT.
87
áveitu á Auðaholtsmýri svo mikils virði, að vert væri
að leggja i þann kostnað, er hún hefði í för með sér.
Að öðru leyti hefi eg mælt, — sem vert er að nefna
sérstaklega —til áveitufyrir Álfhólahverfið og fleiri bæi í
Vestur-Landeyjum. Kostnaðurinn við hað verk áætlaður
1800 kr. Einnig hefi eg mælt fyrir framræslu á Beig-
alda í Mýrasýslu. Kostnaður við hana um 1000 kr.
Þá mældi eg, eins og áður er á minst, fyrir girð-
ingu milli Hvolhrepps og Fljótshlíðar. Vegalengd hennar
um 6000 faðmar eða rúmir 11300 metrar, og kostnað-
ur áætlaður 5100 kr. Geta má og þess, að eg á ferð
minni um Vestur-Skaftafellssýslu í júní s. 1. skoðaði og
kynti mér fyrirhugaða áveitu á sandana í Meðallandinu,
úr Ásakvíslum. Kostnaðinn við það verk hefir Ko-
foed Hansen áætlað 3500 kr.
Kunnugra er það en frá þurfi að segja, að Meðal-
landið er undirorpið skemdum og eyðileggingu af sand-
ágangi. Jarðir þær, sem verða fyrir mestum skemdun-
um og hættast er við að fari í eyði, eru að þeirra á-
iiti, sem bezt þekkja þarna til, 8000—10000 kr. virði.
Virðist mér því að vert sé að gera þessa tilraun með
að veita á sandana.
Áveitunni ætti að haga þannig, að veitt væri á
sandinn að eins vor og haust. Byrja áveituna snemma
í mai að vorinu og halda henni áfram frarn undir slátt.
Veita svo á að haustinu frá því heyskap er lokið og það
fram yfir veturnætur. Að láta vatnið liggja stöðugt yfir
alt árið, eins og komið hefir til orðs, getur því eigi
samkvæmt þessu komið til mála.
Auk þessa hefi eg gert. ýmsar mælingar hjá einstök-
um mönnum og búnaðarfélögum, víðsvegar þar sem
eg hefi farið um, og er þess áður að nokkru getið.
Kynnisförin. Svo nefni eg ferð norðlenzku bænd-
anna hingað til Suðurlands í sumar er leið. Tilgangur-
inn með förinni var aðallega sá, að kynnast búskap og
framkvæmdum bænda hér syðra. í ferðinni voru 27