Búnaðarrit - 01.01.1911, Page 100
96
BTJNAÐARRIT.
Hjálmtýr Magnússon, Keisbakka, sömu sýslu,
Guðmundur Guðmundsson, Bakka á Seltjarnarnesi,
Kristján Kristjánsson, Reykjavík,
Sigurður Benediktsson, Hjarðarholti, Dalasýslu,
Yigfús Þorgilsson, Búðum, Snæfellsnessýslu.
Vigfús kom dálítið seinna en hinir. Er hann enn
hór í Einarsnesi til þess að vinna það upp í haust, sem
hann hafði mist úr í vor.
Nemendurnir voru 17—22 ára. Eg get með ánægju
gefið þeim bezta vitnisburð. Þeir komu stundvíslega á
hverjum morgni kl.7 til 1—1 x/2 stundar munnlegrar kenslu,
fyrirlestra um jarðveginn, tilgang jarðyrkju, jarðyrkju-
verkfæri, fræblandanir o. fl., og rituðu hjá sér eftir upp-
lestri hið heizta úr fyrirlestrunum. Þá höfðum við leik-
fimisæfingar i ’/2—1 stund, og síðan voru nemendur frá
kl. 10 til kl. 71/2 um kveldið til skiftis við að plægja,
herfa, slótta, aka áburði og sá höfrum, grasfræi, kart-
öflum og rófufræi. Seinustu dagana lót eg þá reikna
flatarmál nokkurra plægðra bletta og reyndum að finna
hæðarmun með haliamæli.
Tilsögn í búreikningum höfðum við í 4 stundir.
Nemendur sýndu jafnan athygii og áhuga. Eg þori
að fullyrða, að þeir fengu eftir ástæðum góða æfingu og
höfðu gott gagn af náminu. Og eg er viss um, að þeir
eru hver um sig færir til að vinna öll venjuieg jarð-
yrkjustörf og vildi óska að þeir fengju tækifæri til þess.
Einarsnesi, 4. okt. 1910.
Alfr. Eristensen.