Búnaðarrit - 01.01.1911, Blaðsíða 106
102
BÚNÁÐÁRRÍT.
Ýmisleg gjöld (gjaldl. 13.) hafa farið kr. 89,37 fram
yflr áætlun. Stærsti gjaldliðurinn þar er til búnaðar-
námsskeiða. Þeirra heflr verið mjög óskað, og þótti
sjálfsagt að taka tillit til þess, þótt ekkert fó væri sér-
staklega til þess ætlað á áætluninni fyrir 1909. Hefir
fé til þess verið tekið af þessum gjaldlið og gjaldl. 7.
Var námsskeið haldið í Þjórsártúni, kostað af félaginu, og
200 kr. varið til að styrkja Búnaðarsamband Vestfjarða
til námsskeiða þar vestra. Áætlun þessa árs ætlar fé
til slíkra námsskeiða, og hefir félagið haldið tvö, í Þjórs-
ártúni og í Vík í Mýrdal, en styrkir námsskeið víðar.
Skýrsiur um námsskeiðin eru í Frey og öðrum blöðum.
Gjaldliður 14, slátrunarkensla, er nýr liður í reikn-
ingi félagsins. Hún var sett á stofn eftir ákvörðun bún-
aðarþingsins í fyrra og varið til hennar kr. 808,45. Af-
gangur þar kr. 191,55 af áætluðum 1000 kr. Kenslan
var vel sótt og verður henni haldið áfram þetta ár og
næsta. ár. Eru ætlaðar til hennar 800 kr. hvort árið.
Um efnahagsyflrlitið í árslok gat forseti þess, að
húseign félagsins í Lækjargötu 14. hefði verið lækkuð í
virðingu um 2000 kr., en verkfæri hækkuð um 400 kr.
Þá heflr land gróðrarstöðvarinnar nú í fyrsta sinn verið
tekið inn í reikninginn og metið 5000 kr. Það eru þær
sex dagsláttur, sem keyptar hafa verið handa gróðrar-
stöðinni og eru erfðafestuland hennar.
Sjóðseign félagsins (peningar og skuldabréf) hefir á
árinu aukist um kr. 2593,60, en virðingarverð annara
áður talinna eigna, svo sem áður er sagt, lækkað um
2000-f-400=1600 kr. Væri því eignaauki félagsins, ef
gróðrarstöðvarlandið væri ekki meðtalið, kr. 993,60.
Af peningaeign félagsins hefir verið ákveðið að verja
nær helmíngnum til að kaupa bankavaxtabróf, 6200 ki'.
að nafnverði, í viðbót við þær 13800 kr. í bankavaxta-
bréfum, sem fyrir eru, svo að fastasjóður íólagsins í
þeim verði 20000 kr. Þessar 6200 kr. samsvara næst-
um nákvæmlega því, sem félagið hefir fengið frá upp-