Búnaðarrit - 01.01.1911, Page 119
Skýrslur og tillögur
frá framkvæmdarstjórn Búnaðarfélags ís-
lands, lagðar fyrir búnaðarþing 1911.
I.
Skýrsla um störf félagsins 1909 og 1910.
Um störf félagsins 1909 teljum vér að mestu leyti
nægja að vísa til skýrslu um ársfund þess 1910 og
skýrslna þeirra í Búnaðarritinu, sem vitnað er til í árs-
fundarskýrslunni.
Tekjur félagsins höfðu það ár orðið kr. 241,17 fram
yfir áætlun. Leifar og umframgreiðslur á einstökum
gjaldaliðum eru taldar í ársfundarskýrslunni, og er nú
til umframgreiðsinanna á gjaldl. 8., kr. 457,40, gjaldl.
10., kr. 6,95, gjaldl. 12., kr. 2,60, og gjaldl. 13.,
kr. 89,37, leitað samþykkis búnaðarþings.
Um tekjuafganginn, sem það ár varð, tölum vér siðar.
Þá er kemur til ársins 1910 verðum vér einnig að
vísa til skýrslna í Búnaðarritinu um ýms þau störf, sem
félagið hefir haft með höndum. Hér skal minst á nokk-
ur atriði, einkum frá þeirri hlið, að sýna meðferð fjárins
i samanburði við áætlunina. Fylgjum vér því röðinni
i reikningnum.
Tekjurnar urðu nokkru meiri en áætlað var. Fé-
iagatiliög urðu 40 kr. umfram áætlun, vextir kr. 131,24,
fyrir seid Búnaðarrit kr. 143,10, tekjur af gróðrarstöð-
inni kr. 73,48 og tekjur af húseign félagsins kr. 11,67.
Hér má ennfremur telja 20 kr. milligjöf milli eins út-