Búnaðarrit - 01.01.1911, Page 168
164
BÚNAÐARRIT.
Samþykt í einu hljóði að afgreiða málið með þessum
breytingum til iandbúnaðarnefndar alþingis.
8. f u n d u r.
Laugardaginn 25. febr. kl. 2.
Tillögur jarðræktarnefndar um Miklavatnsmýrar-
áveitu voru ræddar í annað sinn.
Fyrri tillaga nefndarinnar:
Búnaðarþingið mælir með því, að alþingi veiti hag-
kvæmt lán úr viðlagasjóði, 25000 kr., til áveitu úr
Þjórsá á landsspildu í Gaulverjabæjar og Villingaholts
hreppum (Miklavatnsmýraráveitu), samkvæmt mæling-
um K. Thalbitzers í sumar sem leið,
var samþykt í einu hljóði, ásamt viðaukatillögu frá
Eggert Briem svolátandi:
að því tilskildu, að vatnsvirkjafróður maður hafi
umsjónina með gerð gáttarstíflunnar við Þjórsá og
skurðgreftinum gegnum árbakkann.
Þá var samþykt í einu hljóði önnur tillaga nefnd-
arinnar:
Búnaðarþingið heitir styrk til Miklavatnsmýrará-
veitunnar, ^/s kostnaðarins, alt að 6000 kr., er greið-
ist á 3 árum,
ásamt viðaukatillögu frá Eggert Briem:
Búnaðarfélagið veiti auk þess ókeypis aðstoð starfs-
manna sinna, að svo miklu leyti, sem því verður við
komið, hvorttveggja gegn því, að Búnaðarfélagi íslands
sé ekki að eins falin umsjón með framkvæmd verks-
ins, heldur sé og fyrirkomulag fyrirtækins að öðru
leyti háð samþykki þess, og að Búnaðarfélag íslands
eigi kost á nægu landi til umráða, þar sem komið
verði við verulegum tilraunum með afnot vatnsins o.fl.
Telur búnaðarþingið heppilegast, að tilraunasvæðið
fengist á þann hátt, að búnaðarfélagið fengi umráð
yflr einhverri þeirra jarða, er afnot hafa af áveitunni, um
100—150 teigum áveitulands, svo að búnaðarfélagið,