Búnaðarrit - 01.01.1911, Page 222
218
BÚNAÐARRIT.
ekki sagt, því alt af er lagt í ef frost
er, en ventilgötin eru vanalega alt af
opin nótt og dag, þó mikið frost só,
ef ekki er rok, þá samt þau, sem eru
í hlé.
Ad 27. Raka verður aldrei vart í stofunum
niðri, enda ekkert búið þar á vetrum.
Uppi verður hans ekki heldur vart
nema í frostum og þá helzt á þiljun-
um niður við gólfið bak við rúm,
raunar alt í kring niður við gólfið í
langvarandi göddum, minna þó í seinni
tíð síðan steinninn er orðinn þur.
Kemur hugsa eg af kuldalofti milli þils
og veggjar frá neðri herbergjunum,
þar sem ekkert er stoppað; hugsa eg
að það hyrfi alveg, ef stoppað væri
nú milli þils og veggjar í íbúðarher-
bergjunum, enda var það meiningin,
þegar steinninn væri orðinn þur, en
þetta hefir verið svo lítið, að það hefir
ekki þótt saka.
Nr. 8. Útveggir tvöfaldir, hlaðnir úr steyptum steinum,
13 þmi. þykkir (þar af holið 3 þml.), sements-
húð og testalín utan, sumt þiljað og pappalagt
innan með óstoppaðu bili, en sumt sléttað
og málað; það er sjúkrahús.
Ad 26. Sjúkrastofurnar (þiijaðaij eru mjög
hlýjar og alveg rakalausar, frýs á
sjúkragangi og útbyggingu (óþiljað),
þegar mikið er frost. Sama að segja
um á efra lofti (þar eru útveggir að
nokkru leyti úr timbri, að eins port úr
steini 1 al. 7 þml.), og er það mest því
að þakka, að stoppað er með þurrum
sverði. í fyrstu var að eins 1 herbergi