Búnaðarrit - 01.01.1911, Page 234
230
BÚNAÐARRIT.
Auk þessa hafa verið gerðar tilraunir með tilbúinn
áburð, framhald þeirra tilrauna, sem áður hefir verið lýst
og nú eru orðnar 8 ára gamlar. Á tiliaunasvæðið var
sáð grasfræi vorið 1906 og er það síðan óhreyft. Sum-
arið 1910 var sáðslóttan á 5. ári. Þetta land hefir
aldrei fengið annað en tilbúinn áburð, og hver reitur
aldrei annað en það sem tilfært er við hann í eftirfar-
andi töflu, sem sýnir ágóðann.
Verð Hey af dag- Hreinn
Áburður á dagsláttu áburð- sláttu ágóði af
arins kr. Pund Verðheys- ins kr. áburðin- utn kr.
200 pd. súporfosfat 20°/o 11,00 2670 92,45 41,55
100 pd. kalisalt 37°/o... 8,50 2100 73,50 25.10
150 pd. Kílísaltpétur .. 19,50 2250 78,75 19,35
200pd, súperfosfat .... 100 — kalísalt 19,50 4620 161,70 102,30
200 pd. súperfosfat .... 100 — kalísalt 150 — Kilísaltpétur ... 39,00 4800 168,00 89,10
Enginn áburður 1140 39,90
í töflunni er fyrir stuttleika sakir sýnd að eins
heyvigtin, þótt grasið væri líka vigtað. Var það gert til
þess að vissari samanburður fengist. Heyið léttist um
rúman helming í þurkinum.
Enn fremur hafa verið gerðar tilraunir með búpen-
ingsáburð og tilbúinn, i sameiningu. Um fyrirkomulag
þeirra vísast til Búnaðarritsins 1909, bls. 68 og 69, en
árangurinn verður ekki birtur fyr en í ársskýrslunni 1912.
r ö s.
Sáð hefir verið mörgum grasfrætegundum þessi árin,
öllum þeim sömu og getið er um í skýrslunni fyrir
1908 og nokkrum fleirum. Verður hér minst nokkuð
ger á hverja þeirra.