Búnaðarrit - 01.01.1911, Page 243
BÚNAÐARRIT.
239
stone eða white globe, og gefa þær upp um haustið og
snemma um veturinn, en til að gefa þar á eftir ælti
hann að rækta Dales hybrides og bortfelzkar rófur.
Gulrófur.
Siðastliðin tvö ár voru 12 afbrigði ræktuð af gul-
rófum, eitt þeirra var íslenzkt, fræ hér frá gróðrarstöð-
inni, nokkur voru frá Edinaborg. Hin voru bæði frá Dan-
mörku og Noregi.
Það. er talið svo, að íslenzku gulrófurnar séu komn-
ar út af Þrándheims gulrófnaafbrigðinu, þess vegna voru
þær í tilraununum bornar saman við norskar Þránd-
heimsrófui og danskar Þrándheimsrófur. Munurinn var
talsverður á útliti þeirra, þær íslenzku talsvert rauðari
og heldur greinaminni; þær útlendu voru líka greina-
litlar. Munur var og nokkur á stærðinni. Þær íslenzku
urðu þyngstar, þá þær dönsku, en þær norsku nokkru
léttastar.
Banghólmrófur af dönsku fræi urðu álíka þungar
og ís). gulrófur. Reyndi eg tvo kynstofna af Bangholm,
annan kendan við Olsgaard, hinn við Pajbjerg. Enginn
þyngdarmunur á þeim. Reyndin varð þá sú, að af ís-
lenzku fræi og því bezta danska spruttu rófurnar álíka
vel, en önnur fræverzlun dönsk reyndist miður en sú
norska; skozka gulrófnafræið einna lakast, en það reynd-
ist þó tiltölulega betur en fóðurrófurnar.
Kartöflur.
Þessi síðastliðin 2 ár voru gerðar tilraunir með 38
afbrigði af kartöflum. Af nýjum, sem reyndar voru,
reyndust 3 mjög vel, tvö af þeim innlend, vestan af
Barðaströnd og norðan af AJcureyri, og hið þriðja útlent
afbrigði, er nefnist early puritan. Haldið áfram með úr-
val úr nokkrum beztu afbrigðunum. Sum afbrigðin,