Búnaðarrit - 01.01.1911, Page 256
252
BÚNAÐARRIT.
Samþykt að veita stjórninni heimild til að taka
alt að 1200 kr. lán, ef með þarf.
11. Samkvæmt lögum Sambandsins gekk síra Sigurður
Stefánsson úr stjórninni, en var endurkosinn í e. hlj.
Kjartan Guðmundsson baðst lausnar úr stjórn-
inni; var það veitt og í hans stað kosinn póstaf-
greiðslumaður Guðmundur Bergsson á ísafirði.
í varastjórn endurkosinn:
Helgi Sveinsson, bankastjóri á ísafirði.
Endurskoðunarmenn endurkosnir:
Magnús Ólafsson, kaupmaður, og
Kristján H. Jónsson, ritstjóri.
Pundarstaður ákveðinn á ísafirði næsta ár.
Eftirfylgjandi æfifélagar teknir i Sambandið:
Karl Olgeirsson, verzlunarstjóri á ísafirði,
Guðm. Bergsson, póstafgreiðlum. s. st.
Hannes Jónsson, ráðunautur s. st.
Ingimundur Magnússon, póstafgreiðslum. i Bæ.
Sjóðsleiíar Vesturamtsins.
Þess var getið í síðustu ársskýrslu, að sýslu-
nefndirnar á sambandssvæðinu hefðu vikist vel undir þá
málaleitun Sambandsins, að veita því umráð yfir sjóðs-
leifum Vesturarntsins, er i þeirra hlut kom. Hér skal
nánara skýrt frá undirtektum þeirra.
Sýslunefnd Strandasýslu hefir afhent Sambandinu
þann hluta þessa fjár, er kom í hlut 5 nyrztu hreppanna,
með því skilyrði, að höfuðstóllinn sé aldrei skertur, held-
ur afhentur óeyddur, ef sambandið hættir að vera til,
upphæð kr. 1010,53
Sýslunefnd Norður-ísafjarðarsýslu hefir af-
hent sinn hluta með sömu skilyrðum, upphæð kr. 2490,83
Sýsluneínd Vestur-ísafjarðarsýslu veitir
Sambandinu árlega vexti af sínum hluta, að
frádregnum 10 °/0, er jafnan leggist við höfuð-
stólinn, upphæð kr. 1784,01