Búnaðarrit - 01.01.1911, Page 267
Árið 1910.
Eins og að undanförnu birtist hér yflrlit yflr árferð-
ið á árinu liðna. Er það bygt á árferðisskýrslum þessara
manna: Björns hreppstjóra Bjarnarsonar í Grafarholti,
Jóns prófasts Sveinssonar á Akranesi, Magnúsar pró-
fasts Andréssonar á Gilsbakka, Jóhannesar L. L. Jóhanns-
sonar, prests á Kvennabrekku, Sigurðar prests Stefáns-
sonar í Vigur, Guðmundar G. Bárðarsonar bónda á Kjörs-
eyri, Arna bónda Árnasonar á Blönduósi, Jónmundar prests
Halldórssonar á Barði, Arnórs búfræðings Björnssonar á
Hrísum, Jónasar próíasts Jónassonar á Akureyri, Sigurðar
P. Sívertsen, prests á Hofi, Gísia bónda Ileigasonar í
Skógargerði, Ara bónda Brynjólfssonar á Þverhamri,
Magnúsar prests Bjarnasonar á Prestbakka, Guðmundar
bónda Þorbjai'narsonar á Hvoli, Agústs bónda Helgason-
ar í Birtingaholti og Gísla G. Schevings bónda í Stakkavík.
Tíðarfar og heyföng.
\'etur frá nýári. Árið byrjaði vel, en góða tíðin
stóð stutt. Snjókomur miklar, og fannfergja um land
alt til jafndægra, en ekki frosthart. Sumstaðar fentu
fjárhús í kaf jafnvel sunnanlands. Þó fundust tvær
kindur lifandi á Hellisheiði um vorið, útigengnar, sauð-
ur 5 vetra og lamb. Voru þær sín í hvoru lagi; sauð-
urinn á Núpsfjalli, varla rólfær, lifði þó; lambið í Meitl-
um, hressara, annað dautt hjá því.
Alstaðar að er getið hins sama, að veturinn hafi
verið með allra gjafafrekustu vetrum. Samfeld harð-
indaskorpa um alla Vestfirði. Elztu menn muna ekki