Búnaðarrit - 01.01.1911, Page 311
BÚNAÐARRIT. 291
Uin myndirnar II. og III.
Frá Jóhanni Magnússyni.
Eg heft gert uppdrátt af peningshúsum, haughúsi,
safnþró og hlöðum. Við teikninguna hefi eg eftir föng-
um haft það þrent fyrir augum, sem ávalt hlýtur að hafa
gildi í framtíðarskipun peningshúsa, en það er að þau
sé heilnœm, haganleg og varanJeg, og meina eg með þvi:
1. að húsin sé björt, loftgóð, rúmgóð, saggalaus, súg-
iaus og hæfilega hlý;
2. að húsin sé svo haganlega bygð, að öll vinna í þeim
sé auðveld og ódýr, og skepnurnar fái öll nauðsyn-
leg þægindi, og hey og áburður skemmist og rýrni
sem minst;
3. að húsin sé varanleg, vönduð að efni og smiði.
Fjós, haughús, safnþró og heyhlaða.
(Myndir II. 1—20
Fjósið. Eíns og uppdrátturinn sýnir, hefl eg gert
ráð fyrir fjósi, sem tekur 10 kýr. Það er 27 fet á
lengd og 2Ú/2 fet á breidd. — Vegghæðin er 3^/2 alin
og risið 1 alin. Fjósið er því tvistætt. Veggirnir á 3 vegu
eiga að vera hlaðnir úr grjóti, steinlímdir. Hlöðuvegg-
urinn er á einn veginn, og er hann einfaldur, 9 þuml. á
þykt, eins og allir veggir í byggingu þessari aðrir en
fjósveggirnir. Hæð fjóssins er 41/* al. í mæni, eða ná-
iægt 4 álnum að meðaltali. Er það samkvæmt því, sem
reynsla er fengin fyrir erlendis að sé hæflleg hæð á fjós-
um, til þess að þau haldist mátulega hlý og loftgóð.
Gólfflötur fjóssins er líka nálægt því, sem þar er álitið
urfa, eða 14V2 feralin handa hverri kú.
Eftir miðju fjósinu þvert yflr er gangstétt 2 álna
breið, og jHórrennur sín hvoru megin, 18 þuml. á breidd
og 4 þum!. á dýpt. Básarnir eru 2 álnir og 18 þuml.
á lengd og 1 alin og 18 þuml. á breidd. Halli á bás-
unum er 1—Ú/2 þum!. Milligerðir milli básanna eru