Búnaðarrit - 01.01.1911, Page 312
292
BÚNAÐARRIT.
þanníg, að önnur milligerðin er lárétt úr rimlum, sem
negldir eru á stafi, en hin liggur á ská frá jötuþili og
fram undir básbrún. Sú fyrri er Ú/2 alin á hæð og 2
álnir á lengd, hin er 2 áln. upp við þilið, 2 álnir og 9
þuml fram í básinn. Jatan er 1 al. 12 þ. á breidd að
ofan og 22 þuml. að neðan. Milli hennar og básanna
er þil, 2 álnir og 6 þuml. á hæð frá básgólfi. Á þilinu
eru göt, sein kýrnar geta stungið höfðinu í gegnum, þeg-
ar þær óta. Þau eru 20 þuml. að vidd að ofan, og
þeim lokað með því að hleypa fyrir þau grind þannig
gerðri, að hún lokar þeim öllum i einu, og opnast þau
aftur með því að kippa grindinni til baka um 20 þumi.,
og er hún þá fest með loku, svo að hún hlaupi ekki fyrir
aftur. Grindin hangir í járnhengslum eða veltur á hjói-
um. Botn jötunnar er íhvolfur ög vatnsþéttur, úr se-
mentssteypu, — steyptur í móti s/4—1 þumi. á þykt og
um 1 alin á lengd. Þessír bútar eru svo skeyttir sam-
an með steiniími, að ekki leki um samskeytin. Þannig
lagaður botn er ætlaður til þess, að bæði megi gefa í
jötuna kraftfóður og vatn. 'Annars má hafa torfbotn
í jötunni. Undir jötuna er hlaðinn 6—8 þuml. hár
grjótbekkur. ' Upp af jötunni gangmegin er borða-
brydding, sem varnar því að fóðrið faili niður i fóður-
ganginn.
Ióöurgangurinn bak við jötuna er 1 alin á breidd
að ofan. Gólfið í honum mætti vera moldargólf.
Básbrúnir, ílórrennu og stétt væri að líkindum bezt,
að steypa; yrði það varanlegast. Þó getur verið varan-
legt, að hafa reununa úr borðum; viðurinn harðnar af
þvaginu. í básana væri gott að hafa barinn leir (deig-
ulmó) og eins í stéttina. Steingólf í básum yrði of
kalt í okkar loftslagi. Trégólf er líka gott, en það end-
ist illa.
Fordyri fyrir útidyrum fjóssins er 4 feta langt,, 3^/a
fets breitt. Annað fordyri er við dyr inn í hlöðuna, en