Búnaðarrit - 01.01.1911, Page 315
BÚNAÐARRIT.
295
Heyhlaðan stendur þvert fyrir fjósi og haughúsi, og
er hliðveggur hennar annar urn leið gaflveggur haug-
hússins og fjóssins. Hlaðan er 40 feta löng, 18 feta
breið; veggirnir IOV2 fet á hæð og risið 4 fet. A öðr-
um gaflvegg hennar eru dyr niðri, 2 álna breiðar og 2
áln. 18 þuml. háar. Á hinum gaflveggnum uppi er sátu-
gat, 2 álna hátt og Ú/2 al breitt. Á þeim hliðveggnum,
sem frá fjósinu snýr, eru 3 göt, 18 þuml. breið og 1 al.
há, með hlerum fyrir. Göt þessi eiga að vera til að
hleypa birtu inn í hlöðuna, þegar verið er að vinna í
henni. Þess á milli er þeim lokað. Það er einfaldara
og ódýrara en gluggar, og eiga þessi göt að koma í
þeirra stað. Til þess að komast að sátugat.inu, og til
þess að auðunnara sé að taka móti heyi, þarf aðbyggja
brú, sem væri svo há og breið, að taka megi ofan hey-
ið af hestunum rétt við gatið og snara sátunum inn í
hlöðuna og snúa hesti við uppi. Hún þarf að ná svo
hátt upp á vegginn, að ekki sé meira en 1 al. í mesta
lagi upp í sátugatið, og 5—6 álna breið. Slíka brú má
byggja úr torfi og grjóti og fylla upp með mold og þekja
yfir með möl, ef ekki hagar svo landslagi, að hlaðan sé
niðurgrafin og brúin þannig sjálffengin. — Hlaða eins og
þessi ætti að taka um 450 hesta af töðu.
Fjárhús og heyh’laða.
(Myndir III. 1—2.)
Fjárhús þau, sem myndirnar sýna, eru undir báðum
hliðveggjum hlöðunnar og taka um 400 af rosknu fé.
Þau eru með skúrlagi og hvort um sig 35 álna langt
og 13 álna breitt; hæðin 3 álnir að framan, en 5 álnir
við hlöðuna. Gólfflötur hvers húss er 455 ferálnir eða
ferálnir fyrir hverja kind. Húsunum er skift í 5
deildir hvoru, og rúmar hver deild 40 kindur á jötu.
Jatan er 1 alin 20 þuml. á breidd, og er undir hana
hlaðinn grjótbálkur (garði), en upp af slegin borð 7—8
þuml. breið (jötustokkar) á garða stafi. Hver kró er 2