Búnaðarrit - 01.01.1911, Page 327
BÚNAÐARRIT.
307
ingar keyrslubrúar. Liggur anuar frá slánni í dyr á-
burðarhúss, — en bæi' eru 2 álnir frá gólfi — en hin á
1 fets hátt þrep í dyiunum milli hesthúss og fjóss. (Krók-
ar ættu að vera á endum brúarinnar, þeim er að slánni
snúa, og væri þeim krækt i kengi í slánni, til þess að
ekki dragist sundur). Ef inni í fjósinu er nú lagður
borðstúfur upp á dyraþrepið, má aka hjólbörum alla leið
i áburðarhúsið. Á brúna þurfa að vera negldir þverlist-
ar, til þess að hún sé ósleip að ganga eftir, en á miðjunni
só 6—7 þuml. listalaust bil fyrir hjólböruhjólið. Brúin
má vera úr borðum með okum að neðan. Ætti að negla
borðrenninga upp á rönd ofan á brúarröndina til beggja
hliða. Svignar hún þá síður, og keyrslumaður stígur
síður út af.
Þegar búið er að aka út úr fjósinu í hvert sinn,
ætlast eg til að brúin só tekin niður, og flekarnir reistir
á rönd fram með ganginum sinn hvoru megin. Sé
þeir lagðir rétt fyrir miðju, ná þeir jafn-langt aftur frá
stöllum og milligerðastoðir. Mætti búa svo um, að þeir
geti verið milligerð milli gangs og bása.
Þegar brúin er af tekin, má láta hestana alla út og
inn um 1. útidyr.
Að vísu mætti einnig að nokkru leyti hlaða bálk í
ganginn í brúar stað. Þó mætti bálkur sá ekki vera
lengri en svo, að 2 álnir væru frá endum liíms til hvorra-
tveggja, dyranna, og væri yfir það( bil lagðar fjalir, er
kippa má af, þegar hestar eru látnir út eða inn. Iín þá
yrðu að vera aðrar útidyr á hesthúsinu á framhliðvegg,
rétt við fjósvegginn. Væri það fremur til að auka kulda
í fjósið og því lakara. Milligerðir í hesthúsinu, þar sem
ekki eru stoðir, geta verið skástoðir frá stallbrún aftur
í básana. Dyr á áburðarhúsi (útidyr) eiga að vera á
bakgafli. Lokuð renna til iagargryfju er sýnd á upp-
drættinum. Gæti hún að vísu legið öðruvísi, t. d. að
hún tæki líka við úr hesthúsinu; en því má haga eftir
ástæðum.