Búnaðarrit - 01.01.1911, Page 332
312
BÚNAÐARRIT.
hraungrjóti. En um þessi atriði skal hér ekki fleira
sagt, það kemur ekki beint þessum skýringum við, og
leiðbeiningar um þetta stendur þeim næst að gefa, er
byggingafróðir eru.
Eins og áður er tekið fram, hefi eg haft það í huga,
að sýna húsin á uppdráttunum sæmilega vönduð, og te)
eg ekki aðalhugmyndina með húsaskipunina raskast,
þó að eitthvað só dregið úr. T. d. skal nefnt um uppdr.
IV., að þeir sem þykir of dýrt að hafa fóðurganginn lok-
aðan, geta slept því, sem þó er auðvitað miklu óhent-
ugra. Þeir sem líka þykir ofdýrt, að hafa fóðurgang,
geta lika slept því, og vil eg þó engum ráða t.il þess.
En sé þetta gert, mætti hafa fjósið þeim mun mjórra;
ekki raskar það aðalhugmyndinni i húsaskipuninni, en
fjósið verður óhagkvæmt, ef þetta væri úr dregið. Og
ekki hygg eg að það mundi með róttu geta reiknast
sparnaður.
Þökin hefi eg af ásettu ráði sýnt, öll sem járnþök.
Torfþökin eru óhæf, að minsta kosti sunnanlands. Ed
þótt torfþök væri notuð, raskar það ekki húsaskipuninni
að því er uppdrátt V. snertir, og að því er uppdr. IV.
snertir, hygg eg að þótt toríþök só, þá inegi vel búa
svo um sundin með járni, að ekki þurfi að verða að
sök.
Bent skal á það, að hentugt getur verið á heyhlöð-
uin, einkum ef þæt' eru mjög langar, að hafa heydyr á
hliðvegg, enda þótt slikar dyr sé á báðum göflum. Ann-
ars er þetta nokkuð eftir ástæðum.